Gera úttekt á búsetu utangarðsfólks úti á Granda Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. ágúst 2010 19:10 Björk Vilhelmsdóttir segir nýtt heimili fyrir utangarðskonur vera í undirbúningi. Mynd/ vilhelm.
Velferðarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að gerð verði úttekt á því hvernig til hefur tekist með búsetu fólks í smáhýsum á Granda og þeirri þjónustu sem þar hefur verið veitt. Í fréttatilkynningu frá Velferðarráði kemur fram að töluverður órói hefur verið í kringum smáhýsin á undanförnum vikum og umræða um þau skapaðist við fráfall gestkomandi konu þar í síðustu viku. Björk Vilhelmsdóttir, formaður Velferðarráðs, segir að ráðið leggi áherslu á samráð við þá sem búa í smáhýsunum, þá fjölmörgu sem koma að þjónustu við þessa borgarbúa og nágranna á svæðinu við mat á stöðunni. Björk Vilhelmsdóttir, formaður Velferðarráðs, segist hafa bent á að það sé hlutverk Reykjavíkurborgar að veita heimilislausu fólki húsnæði. Samfélagið vilji ekki að fólk þurfi að búa á götunni. „Það er mikilvægt að þjónustan sem veitt er mæti þörfum þeirra sem hana fá og að um hana skapist friður," segir Björk í tilkynningunni. Á síðasta ári var staða utangarðsfólks kortlögð og rannsökuð af Velferðarsviði og Nýsköpunarsjóði námsmanna. Þjónusta við þennan hóp borgarbúa hefur aukist á síðastliðnum tveimur árum meðal annars með aðstöðu til dagdvalar, færanlegu Heilsuhýsi sem sinnir heilsuvernd fyrir jaðarhópa, og nýju stöðugildi félagsráðgjafa sem sinnir utangarðsfólki á vettvangi. Þessi aukna og bætta þjónusta er í samræmi við stefnu í málefnum utangarðsfólks sem samþykkt var haustið 2008 og nær til ársins 2012. Næsta skref í aukinni þjónustu er nýtt heimili fyrir utangarðskonur. Undirbúningur fyrir það er á lokastigi og verður hægt að bjóða konum sem tilheyra þessum hópi framtíðarheimili innan nokkurra vikna. Björk segir að á fundinum hafi einnig verið lögð fram tillaga VG um að skipa fimm manna nefnd kjörinna fulltrúa til að kortleggja stöðu utangarðsfólks. Sú tillaga hafi verið felld með 6 atkvæðum fulltrúa Besta flokksins, Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, enda þurfi í dag aðgerðir og þjónustu en ekki nýja nefnd um það sem nýbúið er að fjalla um og ákveða.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira