Sjúkraflugvél verður í Eyjum á Þjóðhátíð 23. júlí 2010 13:47 Nokkrir hressir kappar á leið á Þjóðhátíð í Eyjum. Mótshaldarar búast nú við fleiri gestum en nokkru sinni fyrr. Mynd/Heiða Helgadóttir
Sjúkraflugvél verður staðsett í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra fól nýlega Sjúkratryggingum Íslands að semja við Mýflug hf. um veru vélarinnar yfir helgina, en kostnaðarauki vegna þessa er 725 þúsund krónur. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins. „Eðlilegt er að fullt viðbúnaðarstig sé í Vestmannaeyjum þessa helgi, þegar íbúafjöldi margfaldast. Ákvörðunin er tekin í samræmi við mat á aðstæðum," segir Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra. Á dögunum bötnuðu samgöngur við Vestmannaeyjar með opnun Landeyjahafnar sem gæti haft í för með sér aukinn gestafjölda í Eyjum um verslunarmannahelgina. Samkomulagið við Mýflug hf. felur í sér að frá hádegi föstudaginn 30. júlí til miðnættis mánudaginn 2. ágúst verður Chieftainvél Mýflugs staðsett í Vestmannaeyjum til sjúkraflutninga. Miðað er við það að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja beri ábyrgð á og útvegi sjúkraflutningamenn eða aðra heilbrigðisstarfsmenn ef þörf krefur, til sjúkraflutninga með Chieftainvélinni meðan vélin verður staðsett í Vestmannaeyjum. Mýflug hefur annast sjúkraflug á Vestmannaeyjasvæði frá Akureyri í kjölfar þess að Flugfélag Vestmannaeyja, sem áður hafði um skeið sinnt fluginu, missti flugrekstrarleyfi sitt.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Sjá meira