Handtökutilskipun í haust 14. maí 2010 06:45 Vandkvæði gætu verið á framsali Sigurðar Einarssonar þar sem samningur hefur ekki verið gerður á grundvelli evrópsku handtökutilskipunarinnar.
Frumvarp er væntanlegt í haust um samsvarandi reglur og í evrópsku handtökutilskipuninni. Ísland getur ekki orðið aðili að henni, þar sem það er utan Evrópusambandsins. Hins vegar hafa Ísland og Noregur gert samning við sambandið um einfaldari framsalsmál. Alþingi samþykkti í mars 2007 að heimila ríkisstjórn að semja við sambandið um tilskipunina. Björn Bjarnason gegndi þá stöðu dómsmálaráðherra. Aðspurður hvers vegna ekki hefði enn verið samið um málið segir hann það vera að snúa málum á haus. „Dómsmálaráðuneytið hafði lokið vinnu sinni. Formsatriði eftir hjá utanríkisráðuneytinu. Spurðu diplómatana um hvað þeir gerðu.“ Bryndís Helgadóttir, settur skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins, segir hins vegar að vinna hafi staðið yfir í dómsmálaráðuneytinu frá samþykkt Alþingis. Hún segir málið flókið og hafi ekki tekið óeðlilega langan tíma. Norðmenn hafi ekki heldur lokið vinnu sinni varðandi innleiðinguna. Hún segir aðalatriðið vera einfaldara og styttra ferli. Þá felist í tilskipuninni að löndin framselji eigin ríkisborgara. Alþingi hafi gert athugasemdir við það á sínum tíma. Um áramótin tók gildi nýr framsalssamningur milli Norðurlandanna.- kóp
Mest lesið Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Innlent Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Innlent Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Innlent Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Innlent Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Fleiri fréttir Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Sjá meira