Umræðan villandi 27. júlí 2010 12:01 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra Íslands, Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu og Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins á fundinum í morgun. Mynd/AFP
Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir það vera áhyggjuefni hversu umræðan á Íslandi um sambandið sé óupplýsandi og jafnvel villandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í morgun að lokinni ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins og Íslands. Ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins markar upphaf aðildarviðræðna Íslands. Ráðstefnunni lauk skömmu fyrir hádegi að staðartíma en þá tók við hálftíma blaðamannfundur. Füle sagði einnig að það væri íslenskra stjórnvalda að stuðla að upplýstari umræðu en hann kemur í opinbera heimsókn til Íslands í haust. Belgar fara nú með formennsku Evrópusambandsins og sagðist Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, styðja aðildarumsókn Íslands. Hann sagði að þrátt fyrir Íslendingar séu nú þegar búnir að taka upp mikið af regluverki Evrópusambandsins sé ljóst að það verði erfitt á ná samningi hvað varðar fiskveiði- og landbúnaðarmál. Hann væri hins vegar bjartsýnn á að hægt væri að ná niðurstöðu sem allir gætu sætt sig við. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði að ef Ísland hefði gengið í Evrópusambandið fyrir fimm árum hefði það komið í veg fyrir efnhagshrunið. Össur ítrekaði ennfremur að Íslendingar hefðu margt fram að bjóða - ekki aðeins þekkingu á endurnýtanlegri orku og fiskveiðistjórnun heldur sé lega Íslands mikilvæg þegar kemur að framtíðarnýtingu orkuauðlinda á norðurheimskautssvæðinu og opnun nýrra siglingaleiða. Þá sagði Össur að Icesave-deilan hefði dregið úr áhuga Íslendinga á aðild. Hann benti hins vegar á að stuðningur við aðild hafi sveiflast mikið í skoðanakönnunum á undanförnum árum og sagðist búast við því að stuðningur eigi eftir að aukast á næstu árum.
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent