Innlent

Með kannabis og hvítt duft á Flúðum

Tveir karlmenn um þrítugt voru teknir með smáræði af fíkniefnum á Flúðum, bæði kannabisefnum og hvítu dufti sem grunur leikur á að sé amfetamín.

Það voru fíkniefnahundar tollgæslunnar sem þefuðu efnin uppi, en að sögn lögreglu fara þeir nú um tjaldsvæði og samkomustaði á suðurlandi í sameiginlegu fíknefnaeftirliti lögreglunnar og tollgæslunnar.

Nóttin var heldur róleg hjá Lögreglunni á Akureyri en þar fer fram hátíðin Ein með öllu. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af minniháttar líkamsárás í Sjallanum og þá var einn tekinn grunaður um ölvun við akstur.

Á fimmtudagskvöldið var einn ökumaður tekinn á 118 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Hann var sviptur ökuleyfi í þrjá mánuði og þarf að borga 110 þúsund krónur í sekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×