Bifröst og HR ræða sameiningu skólanna 13. september 2010 06:45 Líkur eru á að Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst sameininst. Fréttablaðið/hari
Forsvarsmenn Háskólans í Reykjavík (HR) og Háskólans á Bifröst ræða nú saman um möguleika á nánara samstarfi milli skólanna og jafnvel sameiningu. Þetta staðfesta Magnús Árni Magnússon, rektor á Bifröst, og Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, í samtali við Fréttablaðið. Viðræður um sameiningu hófust í fyrrasumar en þeim lauk án niðurstöðu. Nú hafa skólarnir tekið upp þráðinn á ný. „Það er reyndar ekkert komið út úr því enn þá, en það má ekki tefjast lengi,“ segir Magnús Árni sem telur að niðurstöðu verði að vænta á næstu vikum. Ari segir að fyrirhugaður niðurskurður á ríkisframlögum til háskólanna hafi hvatt menn til að ræða saman á ný. „Við erum að leita leiða til að vernda háskólastarfið eins og hægt er. Markmiðið er að halda sem bestri kennslu og rannsóknastarfi á landinu. Í okkar samræðum við Bifröst erum við að skoða hvort aukin samvinna eða jafnvel sameining verði okkur til framdráttar varðandi kennslu og rannsóknir. Þannig að við sjáum tækifæri í þessu líka.“ Ekki voru teknir inn nemar í staðnám á fyrsta ári í viðskiptadeild Bifrastar í haust vegna dræmrar aðsóknar. Magnús Árni segir að margar ástæður liggi þar að baki, meðal annars ástandið í þjóðfélaginu. Hann segir góða aðsókn þó hafa verið í fjarnámið, sem gæti að einhverju leyti skýrt minni aðsókn í staðnámið. „Lagadeildin er til dæmis að koma vel út og félagsvísindadeild líka, þannig að þetta er í sjálfu sér ekkert stóráfall fyrir okkur,” segir Magnús Árni. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur verið upplýst um sameiningarhugmyndir Bifrastar og HR. „Við í ráðuneytinu höfum hvatt menn áfram til að skoða alla kosti til að ná sem mestum samlegðaráhrifum. Ég hef persónulega hvatt til þess,“ segir Katrín. - þj, -shá
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira