Innlent

Króuðu ökumann af við Álfabakka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan stöðvaði manninn við Álfabakka. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan stöðvaði manninn við Álfabakka. Mynd/ Pjetur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu elti ökumann bifreiðar á Reykjanesbrautinni í nótt.

Eftirförin hófst við Silfurtún um klukkan hálffimm í nótt og endaði við Reykjanesbraut um níu mínútum síðar. Lögreglumaður sem fréttastofa ræddi við segir að ökumaður hafi ekið á að minnsta kosti á 140 kílómetra hraða þegar að hann fór sem hraðast. Hann var króaður af við Áfabakkann og handtekinn þar.

Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður þegar að hann er kominn í viðræðuhæft ástand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×