Með eina af fréttamyndum ársins hjá Reuters Valur Grettisson skrifar 26. desember 2010 15:38 Glæsileg mynd. Mynd / Ingólfur Júlíusson. „
Ég hef verið að mynda fyrir Reuters í tvö ár," segir Ingólfur Júlíusson en stærsta fréttaveita heims, Reuters, hefur valið fréttamynd Ingólfs sem eina af 150 bestu myndum ársins. Ljósmyndin er af bóndanum Þórarni Ólafssyni þar sem hann reynir að koma hesti í skjól frá öskunni úr Eyjafjallajökli. Eins og sést þá er myndin dramatísk og lýsir nokkuð vel erfiðum aðstæðum bænda sem voru í miklu návígi við eldgosið í Eyjafjallajökli. „Það er ótrúlega gaman að fá að vera í þessum hópi," segir Ingólfur sem byrjaði að vinna fyrir Reuters eftir bankahrunið. Hann segir heimspressuna hafa haft ótrúlegan áhuga á Íslandi síðustu tvö ár enda sérstaklega viðburðarík ár. Ingólfur Júlíusson á vettvangi. „Þar sem menn eru að tapa peningum, þar er einfaldlega áhugi," segir Ingólfur og vitnar þar til áhuga erlendra fjölmiðla á bankahruninu, Icesave og svo eldgosinu. Ingólfur segir Reuters svo hafa haft samband við sig á dögunum þar sem honum var sagt að myndirnar sem hann tók á árinu yrðu sendar í nafni Reuters í alþjóðlegar fréttaljósmyndakeppnir. „Þannig það er nú aldrei að vita hvort myndirnar nái frekari athygli," segir Ingólfur. Aðspurður hvaða mynd honum finnist flottust af þeim 150 myndum sem Reuters valdi, svarar Ingólfur því til að hann geti ekki gert upp við sig. „Þær eru allar svo flottar," segir hann.Myndirnar má skoða hér.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira