Viðhorfskönnun bendir til að vátryggingasvik séu vandamál 6. maí 2010 09:38 Bótasvik eru vandamál að mati SFF.
Að gefnu tilefni vilja Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við yfirlýsingu Félags íslenskra bifreiðareigenda (FÍB) um nýlega skoðanakönnun um viðhorf almennings til vátryggingasvika. Skoðanakannanir sem mæla viðhorf almennings til vátryggingasvika eru framkvæmdar með reglulegum hætti á Norðurlöndunum og öðrum ríkjum Evrópu. Í kynningu SFF á niðurstöðu skoðanakönnunar sem Gallup vann fyrir samtökin eru hvergi fullyrðingar um umfang vátryggingasvika hér á landi, en bent á að ef tekið sé mið af rannsóknum í nágrannaríkjum og horft til heildar bótagreiðslna hérlendis árið 2008 megi ætla að umfang þeirra geti numið a.m.k. 3 milljörðum króna. Þar horfðu SFF sérstaklega til skýrslu Association of British Insurers (ABI) frá því í júlí 2009 þar sem dregnar eru saman niðurstöður úr könnun á vátryggingasvikum í nokkrum ríkjum. Tafla á blaðsíðu 4 úr skýrslunni sýnir að algengasta niðurstaðan sé að áætlað hlutfall vátryggingasvika sé á bilinu 10-15% í nágrannaríkjunum. FÍB benda réttilega á að samkvæmt viðhorfskönnuninni líta langflestir landsmanna vátryggingasvik alvarlegum augum. Það breytir því þó ekki að niðurstöðurnar endurspegla að samt sem áður sé ansi hátt hlutfall svarenda sem þekkir til einhvers sem hefur fengið tryggingabætur sem hann átti ekki rétt á. Hafa þarf í huga að vátryggingasvik eru ekki sér á báti og mikil opinber umræða hefur farið fram um tryggingasvik í almannatryggingakerfinu á undanförnum misserum. Þótt innlend vátryggingafélög hafi ekki beinar tölur um umfang vátryggingasvika á Íslandi þá bendir viðhorfskönnun Gallup til þess að þetta sé vandamál sem sé til staðar hér á landi ekki síður en annar staðar. SFF telja því mikilvægt að leggja sitt á vogarskálarnar til að stuðla að viðhorfsbreytingu til að draga úr umfangi vátryggingasvika. Ætla mætti að það væri kappsmál fyrir FÍB, ekki síður en vátryggingataka almennt, að minnka umfang vátryggingasvika.
Tengdar fréttir FÍB gerir athugasemd við fullyrðingar um vátryggingasvik Félag íslenskra bifreiðaeigenda gerir alvarlegar athugasemdir við þá fullyrðingu samtaka fjármálafyrirtækja að gera megi ráð fyrir að 10-15% af bótagreiðslum frá tryggingafélögunum séu vegna vátryggingasvika. 5. maí 2010 11:08 Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Fleiri fréttir Dýrar en mögulega eitraðar kræsingar þefaðar uppi úti í móa Vill afnema sektir við vændiskaup Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Sjá meira
FÍB gerir athugasemd við fullyrðingar um vátryggingasvik Félag íslenskra bifreiðaeigenda gerir alvarlegar athugasemdir við þá fullyrðingu samtaka fjármálafyrirtækja að gera megi ráð fyrir að 10-15% af bótagreiðslum frá tryggingafélögunum séu vegna vátryggingasvika. 5. maí 2010 11:08