Umskiptatími í íslensku menningarlífi 6. maí 2010 20:00 Menning Listahátíð í Reykjavík – The Reykjavík Festival – Festspillene i Reykjavik, eins og hátíðin nefndist stóð yfir frá 20. júní til 1. júlí 1970. Kápa fyrstu dagskrár hátíðarinnar 1970 skartaði veggteppi eftir Ágerði Ester Búadóttur.
Nú er stutt í að Listahátíð í Reykjavík hefjist, hinn 12. maí, og er hún fertug: á fjörutíu ára afmæli Listahátíðar er vert að rifja upp aðdraganda og tilurð fyrstu listahátíðarinnar sem haldin var í Reykjavík í júní 1970 og hefur af því tilefni verið tekin saman lítil sýning um fyrstu hátíðina. Listahátíðir höfðu menn haldið hér í borginni á árunum eftir stríð og stóðu þá ýmsar stofnanir að þeim ásamt bandalagsfélögum íslenskra listamanna. Síðast hafði verið blásið til slíkra hátíða með minna móti á sjöunda áratugnum en drögin að samfelldri sögu og stofnun Listahátíðar í Reykjavík má rekja til þess að Norræna húsið var opnað í Reykjavík í ágúst 1968. Þar var valinn til forstöðu Ivar Eskeland, þekktur víða um Norðurlönd fyrir drift og lifandi áhuga á menningarstarfi. Hann fékk fljótlega þá hugmynd að hér í Reykjavík ætti að koma á laggirnar norrænni listahátíð þar sem allt hið besta í norrænum listum yrði á dagskrá. Þessa hugmynd sína viðraði hann við Pál Líndal, þáverandi borgarlögmann, sem tók vel í hugmyndina og kynnti hana fyrir borgarstjóra, Geir Hallgrímssyni. Á sama tíma er hinn heimsfrægi píanósnillingur Vladimir Ashkenazy að flytjast til Íslands ásamt íslenskri konu sinni, Þórunni Jóhannsdóttur, og börnum. Hugmyndin um Listahátíð er kynnt fyrir Ashkenazy sem varð strax hrifinn og staða hans í vestrænum tónlistarheimi gerði honum kleift að kalla eftir greiðum. Fyrir hans sambönd hafði hátíðin fyrstu árin greiðan aðgang að nokkrum virtustu tónlistarmönnum í heimi sem flugu hingað upp og léku með Sinfóníunni. Ashkenazy fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1972 og bjó hér í einn áratug, á árunum 1968-1978 þar sem þau hjónin höfðu fengið nóg af erlinum sem fylgdi því að búa í London. Héðan fluttu þau síðan til Luzern í Sviss og sameinuðu með því friðsældina frá Íslandi og það að búa í hjarta Evrópu. Dagskráin var býsna fjölbreytt fyrsta árið: Ef talin eru nokkur atriði má nefna helst: Þjóðleikhúsið flutti Mörð Valgarðsson eftir Jóhann Sigurjónsson í fyrsta sinn í leikstjórn Benedikts Árnasonar, fræg sýning á Bubba kóngi frá Marionett Teatern í Stokkhólmi var þar líka á fjölunum. Í Iðnó var frumflutt Kristnihald undir jökli í leikgerð og stjórn Sveins Einarssonar. Þar var líka flutt dagskrá úr Þorpinu eftir Jón úr Vör við tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar. Í Norræna húsinu voru ýmsir tónleikar og vísnasöngur svo sem djass, kammertónleikar og klassík, en í Háskólabíói voru tónleikar með Daniel Barenboim og Jacquline Du Pré, og með Victoriu de los Angeles, Itzhak Perlman og André Previn undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Í Laugardalshöll voru sögufrægir rokktónleikar með hljómsveitinni Led Zeppelin. Í Iðnskólanum á Skólavörðuholti var sýning á grafíkverkum eftir norska listamanninn Edvard Munch og í Ásmundarsal sýning á breskri grafík frá árunum 1961-1966, en í Myndlistarhúsinu á Miklatúni, eins og það hét þá, sýning á íslenskri nútímalist. Framkvæmdastjórar á hátíðinni voru tveir ungir menn, Davíð Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson. Á sýningu í Norræna húsinu sem opnuð verður á laugardag má sjá minjar frá þessum umskiptatíma í íslensku menningarlífi: dagskrár, úrklippur úr blöðum, ljósmyndir og annað efni tengt þessari fyrstu Listahátíð í Reykjavík. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Fleiri fréttir „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Sjá meira