Lista fólksins hent út af Facebook 23. maí 2010 11:45
Lista fólksins á Akureyri hefur verið úthýst af samskiptavefnum Facebook. Bæjarfulltrúi L-listans segir ljóst að einhverjir hafi viljað skemma fyrir framboðinu. L-listinn býður í ár fram í fjórða sinn til bæjarstjórnar á Akureyri. Undanfarin ár hefur framboðið átt einn bæjarfulltrúa í bæjarstjórn, Odd Helga Halldórsson. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að L-listinn njóti aukins stuðnings á Akureyri en framboðið mælist nú með mest fylgi í bæjarfélaginu og með þrjá bæjarfulltrúa. „Ég var inn á Facebook skömmu fyrir miðnætti í gær og fór meðal annars inn á síðuna okkar. Nokkrum mínútum síðar var hún horfin," segir Oddur. Hann hafi í framhaldinu haft samband við þann sem haldið hefur utan um vefmál L-listans. „Mér skilst miðað við það sem ég hef lesið um mál Ragnaheiðar Clausen þá er hægt að tilkynna stjórnendum Facebook um eitthvað vafasamt. Ef ákveðið margar ip-tölur segja að síða sé vafasöm er henni bara kippt út og það virðist hafa verið gert í þessu tilfelli," segir Oddur og vitnar til þess þegar Ragnheiði Elínu Clausen, fyrrum sjónvarpsþulu, var tvívegis hent út af Facebook-vinasamfélaginu án skýringa síðasta sumar. Aðspurður hvort að framboðið muni ekki reyna að fá síðuna opnaða á nýjan leik segir Oddur og hlær: „Ég hef alla mína vitneskju um svona mál úr viðtölum við Ragnheiði sem sagði að það væri alls ekki auðvelt.“ Oddur segir ljóst að einhverjir hafi viljað skemma fyrir Lista fólksins. Við því sé lítið að gera. L-listinn hafa í gegnum árin ekki tekið þátt í pólitískum skotgrafahernaði. „Við munum ekkert bregðast sérstaklega við þessu nema að glotta út í annað og stofna aðdáendasíðu,“ segir Oddur.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira