Ellefu ár að ljúka við plötu 11. desember 2010 11:00 Fékk til liðs við sig þekkta einstaklinga við gerð fimmtu sólóplötu sinnar. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta bara æxlaðist þannig að þetta hefur tekið langan tíma,“ segir Sveinn Hauksson, sem var í ellefu ár að ljúka við sína fimmtu sólóplötu, Attilla, sem er nýkomin út. Lögin á plötunni eru tíu og því má segja að hann hafi að meðaltali verið í rúmt ár að ljúka við eitt lag. „Það var bara gæluverkefni fyrir sjálfan mig að gera þessa tegund af músík. Maður er í fullri vinnu og svo koma pásur og maður heldur áfram,“ segir Sveinn og vill ekki meina að hann sé haldinn einhvers konar fullkomnunaráráttu. Tónlistin er sambræðingur úr ýmsum áttum þar sem heimstónlist, djass, fönk og gregorískur söngur koma við sögu. Sjálfum er honum illa við skilgreiningar á tónlist. „Þetta er eins og að segja að Led Zeppelin sé þungarokksgrúppa. Það er alveg út úr kortinu því hún er svo miklu meira.“ Sveinn rekur fyrirtækið Rafengi í Reykjavík en er fyrrverandi sjómaður. Tónlistina gerir hann í frístundum sínum og við gerð nýju plötunnar, sem tók 160 tíma að hljóðblanda, fékk hann til liðs við sig fjölda þekktra einstaklinga. Þar má nefna Sverri Guðjónsson, Björgvin Gíslason, Jóhann Ásmundsson, Jóhann Hjörleifsson og leikarann Arnar Jónsson. Honum til halds og trausts við upptökurnar var Arnar Guðjónsson úr poppsveitinni Leaves. „Ég efast um að ég hefði getað fengið betri mann en hann í þetta. Hann er mjög hugmyndaríkur og spilar á öll hljóðfæri,“ segir Sveinn, loksins sáttur við útkomuna. Platan er fáanleg í Eymundsson, Iðu og 12 Tónum. - fb
Mest lesið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Festist í lyftu í New York Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Tímabilið sem flestir vilja gleyma Lífið Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Lífið Alma stolt af syninum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Fleiri fréttir Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Sjá meira