Fjórðungs hækkun á leiguverði á hálfu ári 29. júlí 2010 03:00 Óvenju mikil hækkun hefur verið á leiguverði á síðustu sex mánuðumfréttablaðið/stefán
Fermetraverð leiguhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 17,5 prósent á sex mánuðum. Stærstu eignirnar hækka mest. Leiguverð hefur ekki verið hærra síðan á vormánuðum fyrir hrun. Leigjendur vantar málssvara. Húsaleiga hefur hækkað töluvert frá því í febrúar. Á þetta við um allar stærðir eigna, að stúdíóíbúðum frátöldum. Ef einungis er litið til fermetraverðs hafa tveggja herbergja íbúðir lækkað í verði en hækkun annara eigna er á bilinu 3,9 til 17,5 prósent og hafa stærstu eignirnar hækkað mest. Neytendasamtökin rannsökuðu húsaleigu á höfuðborgarsvæðinu í apríl og desember 2008, mars 2009, febrúar 2010 og svo nú í júlí. Gera samtökin ráð fyrir því að leiguverð á landsbyggðinni sé heldur ódýrara. Niðurstöðurnar sýndu að leiguverð hefur hækkað töluvert á undanförnum mánuðum og hefur ekki verið hærra síðan fyrsta úttektin var gerð á vordögum árið 2008. Ætla má að þeir sem tóku fasteignir á langtímaleigu árið 2008 borgi nú umtalsvert meira heldur en upphaflega var samið um. Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur Neytendasamtakanna, segir verð á hvern fermetra hafa hækkað óvenju mikið á stuttum tíma í ár. „Fermetraverð var í lágmarki í byrjun árs 2009 og miðað við þessar nýju niðurstöður veit maður í raun ekki hvort þetta gæri endað í leiguverði eins og var árið 2008,“ segir Hildigunnur. „Því miður gerðum við ekki svona úttekt fyrir þann tíma.“ Hún segir framboð eigna vera mjög misjafnt eftir hverfum en sé þó nokkuð stöðugt. Eignirnar í úttektinni í febrúar voru 309 talsins en nú í júlí voru þær 272. „Í fyrstu taldi ég ekki nauðsynlegt að framkvæma aðra rannsókn svona stuttu eftir þá síðustu, svo það kom mér verulega á óvart að sjá þessar niðurstöður eftir svona stuttan tíma.“ Neytendasamtökin telja að hækkunin ráðist að einhverju leyti af framboði og eftirspurn á markaðnum en þó hljóti annað og meira að spila inn í. Hildigunnur segir leigumál í landinu vera erfið sökum þess að þau falli í raun ekki undir neytendamál almennings. „Þegar einn einstaklingur leigir öðrum einstaklingi flokkast það ekki undir neytendamál,“ segir hún. „Það vantar alveg sárlega málssvara fyrir leigjendur sem ekki eru neytendur, þar sem Leigjendasamtökin hafa verið lögð niður.“ sunna@frettablaðið.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira