Innlent

Ólafur Ragnar flutti setningarræðu í Portúgal

Forsetinn ræðir við fréttamenn í Lissabon. Mynd/Alban Bodineau
Forsetinn ræðir við fréttamenn í Lissabon. Mynd/Alban Bodineau
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flutti í gær, setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu í boði Norður-Suður stofnunarinnar (e. North-South Centre) sem starfar á vegum Evrópuráðsins. Ráðstefnan bar heitið „The 21st Century: A Century of Global Interdependence and Solidarity" og var haldin í ráðhúsi Lissabonborgar í Portúgal. Stofnunin var sett á laggirnar fyrir 20 árum á grundvelli samþykkta þings Evrópuráðsins. Ráðstefnuna sótti fjöldi sérfræðinga sem og fulltrúar alþjóðastofnana og aðildarríkja Evrópuráðsins.

Í ræðu sinni fjallaði Ólafur Ragnar um þær miklu breytingar sem orðið hafa í samskiptum Evrópuríkja og þróunarlanda og hvernig breytt valdahlutföll í veröldinni sköpuðu nýjan grundvöll fyrir stefnumótun og alþjóðlega samvinnu, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu. Hann rakti hvernig hættan á óafturkræfum loftslagsbreytingum væri nú sameiginlegur vandi allra ríkja. Breytingar á orkukerfum gegndu lykilhlutverki í þeirri baráttu og þróunarlönd hefðu fjölda tækifæra sem tækniþróun undanfarinna ára hefði fært þeim.

Ólafur Ragnar átti jafnframt fund í Lissabon með Jorge Sampaio fyrrverandi forseta Portúgals og forstöðumanni bandalags ólíkra menningarheima sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna (e. UN High Representative for the Alliance of Civilisations) en markmið þess er að auka skilning og virðingu milli ólíkra trúarbragða og menningarheima.

Ólafur Ragnar ræddi einnig við fréttamenn og fulltrúa portúgalskra fjölmiðla, blaða, tímarita og útvarpsstöðva. Í gærkvöldi sat forseti kvöldverð í boði forseta Portúgals og var viðstaddur verðlaunaafhendingu Norður-Suður verðlaunanna en þau hlutu í ár Mikhail Gorbasjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, og Rola Dashti, þingmaður frá Kúveit og baráttukona fyrir réttindum kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×