Kirkjustrákur frá Njarðvík 13. febrúar 2010 04:15 Rapparinn Ástþór Óðinn fílar Bítlana og þykir gangsta-rapp ekki eiga heima á Ísland. Enn sem komið er.
Rapparinn Ástþór Óðinn gaf út plötuna Both Ways í desember. Öfugt við marga á hann í engum vandræðum með að skilgeina tónlistina sína. „Ég myndi segja að þetta væri sniðskotið hiphop í bland við alternative electro. Í dag er helsti áhrifavaldurinn OutKast. Bítlarnir hafa líka mikil áhrif á mig. Textarnir sérstaklega. Ég er mikið í ást og friði og hamingju.“ Ekkert gangsta-rapp, sem sé? „Nei, ég er enginn gangster svo maður getur voða lítið verið að pæla í því. Ég er eiginlega bara kirkjustrákur, en reyndar frá Njarðvík sem er þó allavega eitthvað. Gangster-rapp passar ekki á Íslandi. Kannski eftir 10 ár samt, svona miðað við hvernig ástandið er að þróast.“ Ástþór er 28 ára „gamall refur“ eins og hann orðar það. Hann gerði plötuna Operation On The Mic undir nafninu Iceberg og var í dúettinum 2 leikmönnum. „Við gáfum út eina plötu sem var til á Tónlist.is og í búðum í Reykjanesbæ. Hún fór ekkert lengra.“ En nú er markið sett hærra. Platan er til stafræn á Tónlist.is og Gogoyoko, en Ástþór segist ætla að gefa hana út opinberlega á CD seinna. Lög af plötunni eru í spilun á Rás 2, FM og myndbönd á Nóva TV og Skjá einum. Þau má nálgast á You Tube. En er Ástþórs-nafnið nógu gott á rappara? „Tja, það er nú bara það sem ég heiti, Ástþór Óðinn, og ég nota það bara!“ segir hann. „Kannski maður taki upp eitthvað alþjóðlegra seinna, það er aldrei að vita. Ég hef alveg fengið einhver skot út af forsetaframbjóðandanum Ástþóri, en það býttar nú ekki miklu máli. Maður haggast ekki við það.“ Ástþór Óðinn kom nánast einn að allri gerð plötunnar, samdi, flutti og tók hana upp. Næstu uppákomur Ástþórs eru á Hverfisbarnum 17. febrúar með rapparanum Ramses frá Kópavogi og í Glóðinni í Reykjanesbæ 19. febrúar. Þar kemur Ramses einnig fram og Stjörnuryk, 3. Hæðin, Dj Ace og Orri Err og Siggi Breiðfjörð þar að auki.drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira