Innlent

Gríðarleg sprenging í nágrenni við Svein Rúnar í gær

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson hefur verið á Gaza undanfarna daga. Mynd/ GVA.
Sveinn Rúnar Hauksson hefur verið á Gaza undanfarna daga. Mynd/ GVA.
Gríðarleg sprenging varð á Gaza ströndinni, nærri húsinu þar sem Sveinn Rúnar Hauksson læknir dvelst þessa dagana, um miðnætti í gær að íslenskum tíma. Engar fréttir bárust þó af manntjóni.

Sveinn sagði í samtali við Vísi um klukkustund eftir að hann heyrði sprenginguna að þetta væri fyrsta stórsprenging á norð-vestur Gaza síðan í stríðinu í fyrra. Hann sagði að um hefði verið að ræða sprengjuárás frá F 16 þotu.

Sveinn Rúnar telur að tilgangur Ísraelsmanna með árásinni hafi fyrst og fremst verið sá að hræða íbúa á Gaza ströndinni. Sprenging sem þessi hafi hræðileg áhrif á börn. Hún geti meðal annars haft þau áhrif að stálpuð börn, jafnvel unglingar, fari að sýna hegðun sem aðeins sést hjá ungabörnum.

Sveinn Rúnar segist hafa dvalið á Gaza í um það bil viku. Hann hafi meðal annars heimsótt geðhjálparstofnanir, sjúkrahús, heilsugæslustofnanir og fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×