Innlent

Talsverð ölvun á Akureyri

Akureyri
Akureyri
Talsverð ölvun var á Akureyri í nótt að sögn lögreglu, en allt fór þó þokkalega fram. Fimm gistu fangageymslur fyrir ölvun og slagsmál, en engar líkamsárásir hafa verið kærðar.

Mikið eftirlit hefur verið með ökumönnum og voru tveir teknir ölvaðir undir stýri í morgunsárið, og annar þeirra án ökuréttinda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×