Lífið

Æsilegt ævintýri og rómantík

Percy jackson Ævintýramyndinn um strákinn og hálf-guðinn Percy Jackson verður frumsýnd á morgun.
Percy jackson Ævintýramyndinn um strákinn og hálf-guðinn Percy Jackson verður frumsýnd á morgun.
Auk The Wolfman verða þrjár aðrar myndir frumsýndar á morgun. Percy Jackson & The Lightning Thief er nýjasta ævintýramynd Chris Columbus, leikstjóra Harry Potter 1 og 2 og Home Alone. Myndin fjallar um strákinn Percy Jackson sem hélt að hann væri ósköp venjulegur unglingur en uppgötvar að hann er hálfur guð. Með hjálp vina sinna leggur hann á sig mikið ferðalag til að bjarga heiminum frá tortímingu. Með hlutverk stráksins fer Logan Lerman og aðrir helstu leikarar eru Pierce Brosnan, Uma Thurman, Rosario Dawson og Sean Bean.

Valentine"s Day er eins og nafnið gefur til kynna sérlega rómantísk mynd sem gerist á Valentínusardeginum, sem verður einmitt haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Myndin fjallar um líf nokkurra para á þessum degi og sýnir hvernig þau tengjast hvert öðru. Einhverjir finna ástina á meðan aðrir lenda í hjartasorg, eins og gengur og gerist. Leikstjóri er Garry Marshall, maðurinn á bak við Pretty Woman og Runaway Bride. Með helstu hlutverk fara Bradley Cooper, Anne Hathaway, Jessica Alba, Julia Roberts og Ashton Kutcher.

Þrívíddarútgáfa af teiknimyndinni vinsælu Toy Story 2 verður einnig frumsýnd og eiga margir krakkar vafalítið eftir að hafa gaman af að endurnýja kynni sín af Vidda, Bósa og félögum í þrívídd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.