Fastur í London vegna fugls í hreyfli í Danmörku 1. ágúst 2010 20:26 Flugvél Iceland Express. Mynd tengist frétt ekki beint.
Finnur Stefánsson farþegi með Iceland Express situr nú á Hilton hóteli í London. Hann átti að fara með flugfélaginu heim til Íslands í gærkvöldi en hefur litlar sem engar upplýsingar fengið frá félaginu í dag vegna seinkunarinnar. Upplýsingafulltrúi Iceland Express segir að seinkun sé vegna fugls sem lenti í hreyfli vélarinnar á leið Danmerkur. „Ég átti bókað flug á Stansted með Iceland Express klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Þremur tímum fyrir brottför fæ ég SMS þar sem stendur að það sé búið að seinka fluginu til 1. ágúst, sem sagt í dag. Þar segir einnig að frekari upplýsingar koma síðar," segir Finnur. Í dag fer Finnur svo, ásamt öðrum Íslendingum, út af hótelinu sem Iceland Express hafði útvegað þeim. „Þá kemur rúta og nær í okkur og fer með okkur upp á Gatwick flugvöll. Þar er enginn sem tekur á móti okkur eða segir okkur hvað við eigum að gera, þannig að við förum bara upp til að „check-a" okkur inn. Við sjáum það strax að það er þvílík röð og það er nokkuð ljóst að það voru ekkert allir að fara komast um borð í vélina," segir Finnur. Hann fer því næst á þjónustuborð sem er þar nálægt. „Þar tala ég við afar hjálpsaman karl sem segir okkur að það sé allt lokað heima á Íslandi og þeir á Íslandi þurfa að sjá um það að bóka flug fyrir okkur. Hann getur ekki gert neitt fyrir okkur í dag og við þurfum bara að mæta í fyrramálið klukkan níu og þá skilst mér að það séu einhver 17 sæti laus, en það eru töluvert fleiri en sautján sem eru í sömu sporum og ég." Hann segist vera í þeim sporum núna að þurfa að vakna í fyrramálið og „check-a" sig út. „Og ef ég kemst ekki í hádeginu á morgun þarf ég bara að ráfa um flugvöllinn, því næsta vél er klukkan átta annað kvöld. Ég er orðinn ansi þreyttur og langar heim til Íslands og ég veit að það eru fleiri það," segir Finnur en margir Spánverjar og Frakkar eru á leiðinni til landsins. „Mér finnst vanta að við vitum eitthvað hvað er í gangi, það er ekkert verið að hafa samband við okkur eða neitt," segir Finnur. Kristín Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Iceland Express segir í samtali við Vísi.is að fugl hafi flækst í hreyfli einnar af flugvélum Iceland Express á föstudag, sem var á leið til Billund í Danmörku, og það hafi raskað flugi félagsins nokkuð um helgina. „Farþegar urðu ekki varir við óhappið og vélin lenti á heilu og höldnu." Hún segir að hins vegar hafi hreyfillinn þarfnast skoðunar flugvirkja sem fari alltaf fram þegar svona gerist. „Farþegarnir voru látnir vita af seinkunum á flugi með sms og tölvupósti," segir Kristín. Vegna fuglsins hafi þurft að fella niður flug á London Stansted og farþegum boðið að fljúga frá London Gatwick. Þá segir hún að flugfélagið hafi eftir fremsta megni reynt að koma til móts við þá farþega sem hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa. „Reiknað er með að flug félagsins verði komið í eðlilegt horf í fyrramálið, mánudag."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira