Lofuðu mörgu en gerðu fátt 21. apríl 2010 03:15 Þrír ráðherrar og þrír seðlabankastjórar skrifuðu undir skjalið.
Íslensk stjórnvöld lofuðu í maí 2008 að minnka bankakerfið og breyta lánareglum Íbúðalánasjóðs. Norrænu seðlabankarnir voru tortryggnir. Íslenska bankakerfið var allt of stórt fyrir landið og stjórnvöld gerðu lítið sem ekkert til að breyta þeirri staðreynd. Þetta er ein af meginniðurstöðum rannsóknarnefndarinnar. Nefndin gagnrýnir sérstaklega að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins er gert ráð fyrir enn frekari útrás bankanna. Þessi staðreynd virtist öllum ljós, nema kannski Íslendingum sjálfum, í ársbyrjun 2008. Seðlabanki Íslands kom hvarvetna að lokuðum dyrum þegar hann óskaði eftir gjaldmiðlaskiptasamningum við systurstofnanir sínar víða um heim. Í maí var svo komið að allir höfðu snúið baki við Íslendingum nema norrænu þjóðirnar. Þær settu hins vegar strangar kröfur. Davíð Oddsson seðlabankastjóri hitti norræna kollega sína í Ósló 14. maí og lagði hart að þeim að lána íslenska seðlabankanum fé svo hægt væri að styrkja gjaldeyrisvaraforðann. Í skýrslunni kemur fram að bankastjórar norrænu seðlabankanna efuðust um að ríkisstjórn Íslands tæki á aðsteðjandi vanda. Ekkert dygði minna en uppáskrift ráðherra þar um. Að lokum var hringt í Geir H. Haarde forsætisráðherra og þrír ráðherrar undirrituðu samning um aðgerðir 15. maí. Þar var kveðið á um ábyrga stefnu í ríkisfjármálum annars vegar og hins vegar um Íbúðalánasjóð. Það dugði þó ekki til og forsætisráðherra gaf út yfirlýsingu daginn eftir. Í henni segir að stjórnvöld muni „stuðla að auknum hagvexti og skipulagsbreytingum á íslenska hagkerfinu með það fyrir augum að treysta efnahagslegan stöðugleika“. Þar segir einnig að til þess að bæta virkni peningamálastefnunnar muni ríkisstjórnin „þegar undirbúa og birta trúverðuga áætlun um umbætur og breytingar á skipulagi Íbúðalánasjóð“. Skemmst er frá því að segja að ekkert gekk að minnka bankana. Hvað Íbúðalánasjóð varðar er á málaskrá Alþingis, fyrir haustið 2008, að finna frumvarp frá Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um húsnæðismál. Það hafði ekki verið lagt fram þegar hrunið varð. Skýrsluhöfundar fara ekki í grafgötur með það að loforðin, eða öllu heldur skortur á efndum, hafi haft áhrif til hins verra gagnvart frændþjóðunum á Norðurlöndunum. „Þegar lítið varð um efndir á fyrrnefndum loforðum af hálfu ríkisstjórnarinnar sumarið 2008 bætti hún gráu ofan á svart. Verður ekki annað séð en að þegar þetta aðgerðaleysi bættist við það viðhorf sem áður hafði verið uppi á vettvangi erlendra seðlabanka gagnvart Íslandi hafi íslensk stjórnvöld verið orðin mjög einangruð að þessu leyti á alþjóðavettvangi og þar með átt í fá hús að venda þegar kom að falli íslensku bankanna í október 2008.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Erlent Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Erlent „Kannski var þetta prakkarastrik“ Innlent Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum Innlent Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Erlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent