Hross bar pestina líklega til Þýskalands 26. maí 2010 04:30 Björn Steinbjörnsson og Susanne Braun dýralæknar voru að meðhöndla blóðprufur úr sýktum hrossum í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Hrossapestin sem geisað hefur hér á landi virðist ekki í rénun. Stór hrossabú eru víða óstarfhæf og þekkt að folöld hafi fæðst veik. Grunur leikur á að hross sem flutt var út til Þýskalands nýlega hafi smitað hross á búgarði þar. Þetta segir Björn Steinbjörnsson dýralæknir sem kortlagt hefur útbreiðslu pestarinnar. „Mér er sagt að pestin breiðist hraðar út í Eyjafirði en áður og að nú sé mikið um nýsmit þar,“ segir Björn. „Skagafjörður er langt kominn, en þar hefur pestin staðið frá því í mars og dreifst um fjörðinn. Enn er mikið smit á búum á Vesturlandi og enn meira á Suðurlandi. Í síðarnefnda fjórðungnum eru heilu búin óstarfhæf og sér ekki enn fyrir endann á því.“ Björn kveðst ekki geta fullyrt hvort pestin hafi náð hámarki. „Við Susanne Braun dýralæknir eyddum allri hvítasunnuhelginni í að meðhöndla hross á þremur stórum ræktunarbúum. Þar eru flest hross sjúk, misjafnlega mikið að vísu, en það lítur ekki vel út með það að þau fari á landsmót. Þó að þessi hross yrðu reiðfær eftir tvær vikur þá er þjálfunartíminn skammur fram að landsmóti.“ Björn segist alls ekki geta séð að hross sem veikst hafa hafi komið sér upp ónæmi fyrir veirunni. „Ég hef séð þó nokkuð af hrossum sem eru að smitast í annað sinn. Þau hafa veikst og náð sér, en virðast svo hafa fengið nýsmit aftur. Ég þori ekki að fullyrða þetta en það er eins og þau hafi smitast aftur, áður en brúkun hófst eftir fyrri pestina.“ Björn segir að Herpes 4-vírusinn hafi verið í íslenska hrossastofninum og talinn meinlaus. Til séu aðrir herpesvírusar sem geti smitað aftur og aftur. Full ástæða sé til að rannsaka hvort þeir hafi breytt sér og séu að framkalla þessa sýkingu. Björn segir frjósemi hjá stóðhestum í sumar áhyggjuefni. Fái þeir veikina og hita eyðileggist sæðið í eistunum á þeim. Hann varar einnig við útflutningi hrossa meðan ekki er vitað hvaða smitbera sé um að ræða. „Meðgöngutími virðist vera tvær vikur, eða lengri, áður en einkenni koma í ljós. Hross er smitberi á þessum tíma. Ég þekki dæmi þess að hross sem kom frá Íslandi til Þýskalands virðist hafa smitað önnur hross á búgarðinum þar þannig að þau hross virðast hafa fengið sömu sjúkdómseinkenni og hrossapestin framkallar á Íslandi.“ Björn og Susanne Braun vinna saman að rannsókn pestarinnar. Þau eru í sambandi við tvær rannsóknarstofur í Þýskalandi. Önnur er með efni til greiningar í leit að veirunni, en hin ráðleggur um meðferð. jss@frettabladid.is
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira