Innlent

Farþegaþotum rignir niður á Reykavíkurflugvöll

Fimm farþegarþotur á vegum Icelandair og Iceland Express lentu  á Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna blindþoku , sem óvænt gerði á Keflavíkurflugvelli skömmu áður en vélarnar komu til landsins.

Vélunum var lagt í röð og hátt í sjö hundruð farþegar látnir bíða um borð í þeim, en nú er að létta upp í Keflavík og gátu tvær aðrar þotur lent þar fyrir stundu.

Nokkrar vélanna á Reykjavíkurflugvelli hafa verið að taka smávegis viðbótar eldsneyti, en að því loknu halda þær í loftið á ný, áleiðis til Keflavíkur.

Vegna þessa verða tafir á Evrópufluginu frá Keflavík og líklega einhverjar seinkanir á heimkomu þeirra síðdegis.




Tengdar fréttir

Allar þoturnar farnar af Reykjavíkurflugvelli

Allar þoturnar sem lentu á Reykjavíkurflugvelli eru farnar þaðan aftur. Eins og greint var frá í morgun lentu fimm farþegarþotur á vegum Icelandair og Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna blindþoku, sem óvænt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×