Íhuga samúðaraðgerðir vegna verkfallsins Breki Logason skrifar 12. ágúst 2010 18:34
Slökkviliðsmenn á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli íhuga nú samúðaraðgerðir vegna verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Ljóst er að slíkar aðgerðir geta haft víðtæk áhrif á allt millilandaflug. Líkt og komið hefur fram í fréttum undanfarið hafa slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn átt í kjaradeilu við launanefnd sveitarfélaganna og hafa meðal annars beitt ýmsum verkfallsaðgerðum. Litlu mátti muna að samningur næðust á fundi fyrir viku en upp úr slitnaði. Samninganefndin fundaði síðan á ný með launanefnd sveitarfélaganna í dag en þeim fundi var ólokið nú rétt fyrir fréttir. Samningar hafa verið lausir síðan 31.ágúst 2009. Í fyrramálið hefst 16 klukkustundar verkfall með tilheyrandi aðgerðum en um leið skellur á yfirvinnubann slökkviliðsmanna. Slökkviliðsmenn á Reykjavíkur og Keflavíkurflugvelli eru með samning við Samtök atvinnulífsins í gegnum ÍSAVÍA, sem er rekstarfélag flugvallanna, en þeir hafa einnig verið með lausan samning síðan í lok ágúst á síðasta ári. Þeirra samningaviðræður eru hinsvegar ekki komnar jafn langt og hjá kollegum þeirra en samkvæmt heimildum fréttastofu íhuga menn nú alvarlega samúðaraðgerðir enda orðnir langþreyttir á stöðunni. 44 slökkviliðsmenn eru nú starfandi á flugvöllunum tveimur en ljóst er að verkfall þeirra hefði víðtæk áhrif á flug til og frá landinu en upp undir 300 þúsund manns hafa farið frá Keflavíkurflugvelli undanfarið í hverjum mánuði. Samskipti slökkviliðsmanna við launanefnd sveitarfélaganna eru mjög stirð eftir því sem næst verður komist en segja má að kornið sem fyllti mælinn í dag hafi verið þau tíðindi að starfandi bæjarstjóri á Akureyri beitti sér fyrir því að slökkvibíll yrði færður á flugvöllinn á Húsavík, en það telur Landssamband Slökkviliðsmanna vera verkfallsbrot. Hugsanlegar samúðaraðgerðir verða ræddar á félagsfundi á morgun eftir því sem fréttastofa kemst næst og þá væntanlega tekin ákvörðun um hvort farið verði í verkfallsaðgerðir vegna málsins.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Sjá meira