Öskufjúk mun verða vandamál allt árið 2. júní 2010 06:00 Fínt öskulag var greinilegt í gærmorgun eftir öskufjúk um nóttina. Í Reykjavík má búast við lítilsháttar óþægindum í sumar en viðvarandi vanda næst eldstöðinni lengi enn. fréttablaðið/vilhelm
Vandamál vegna öskufjúks eru líkleg til að verða viðvarandi allt þetta ár og jafnvel árum saman. Svifryksmengun vegna öskufjúks var yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu á mánudag. Öskufjúk hefur gert fólki lífið leitt víða á Suðurlandi undanfarna daga. Lítið hefur rignt og því hafa gosefnin fokið auðveldlega í stífum vindi. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengu einnig sinn skammt eins og sást vel á skítugum bílum í gærmorgun og mistri sem lá yfir borginni. Víða var þeirri spurningu velt upp hversu lengi öskufjúk muni valda fólki óþægindum. Björn Oddsson, jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun, segir ljóst að öskufjúk muni verða viðvarandi vandamál í sumar. „Hins vegar ræðst það af veðri næstu misserin hversu lengi við getum átt von á öskufjúki í verulegum mæli. Ef sumarið verður þurrt og vindasamt og snjór fellur síðan á öskuna verður hún til staðar á næsta ári. Verði blautt aukast líkurnar á því að þetta fína efni hverfi. Menn þurfa hins vegar að búa sig undir þann möguleika að þetta verði viðvarandi næstu árin og því meiri líkur á vandamálum sem nær dregur eldstöðinni.“ Anna Birna Jensdóttir, framkvæmda- og hjúkrunarstjóri hjúkrunarheimilisins Sóltúns, segir að eftir að það byrjaði að gjósa í Eyjafjallajökli hafi einkavarnanefnd Sóltúns fundað, en slíkar nefndir starfa samkvæmt tilmælum frá Almannavörnum. Þá voru viðbrögð við öskufjúki undirbúin. „Við erum með mjög viðkvæmt fólk hérna hjá okkur og þess vegna fór áætlunin í gang á mánudag.“ Anna Birna segir að slökkt hafi verið á loftræstikerfi Sóltúns og hurðum og gluggum hafi verið haldið lokuðum í gær. Hún segir mestu hættuna felast í því hversu fínt rykið er og því ósýnilegt. Þess vegna sé allur vari hafður á. Frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar fengust þær upplýsingar að svifryksmengunin hafi farið yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík á mánudag. Loftgæði hafi hins vegar verið ágæt í gær, þó að skítugir bílar hafi bent til annars. Þar var öskufjúki næturinnar um að kenna. Svifryk í Reykjavík mældist 400 míkrógrömm á rúmmetra sem er með því mesta sem mælist. Svifryksmengun í Reykjavík hefur mælst yfir heilsuverndarmörkum í þrígang frá því í apríl vegna öskufjúks frá Eyjafjallajökli. svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira