Aðdáendur þurftu frá að hverfa af blaðamannafundi Bjarkar 19. júlí 2010 16:33
Fullt var út úr dyrum í Norræna húsinu nú fyrir stundu þegar blaðamannafundur Bjarkar Guðmundsdóttur hófst. Færri komust að en vildu en aðeins blaðamamönnum var leyfður aðgangur. Björk kallaði til fundarins vegna kaupa Magma Energy á HS Orku sem hafa verið mjög umdeild þar sem kaupin fóru fram í gegnum skúffufyrirtæki Magma í Svíþjóð. Eftir að nýjar upplýsingar komu fram í málinu í síðustu viku ákvað Björk að blása til blaðamannafundar. Blaðamaður Vísis sem staddur er á fundinum segir marga hafa staðið vonsvikna fyrir utan þegar tilkynnt var að fundurinn væri aðeins fyrir blaðamenn. Engu að síður hafi verið múgur og margmenni á blaðamannafundinum sjálfum þar sem fulltrúar erlendu pressunnar létu einnig sjá sig. Ekki voru leyfðar spurningar á fundinum heldur reifaði Björk þær spurningar sem hún birti á heimasíðu sinni bjork.com í morgun og sagði þetta samviskuspurningar sem ríkisstjórnin þyrfti að svara. Björk hefur bent á að í ljósi þess hve sölu- og samningaferli í Magma-málinu hafi verið umdeilt og ógagnsætt, sé mikilvægt að umboðsmaður Alþingis taki það til skoðunar til að vita hvort hagsmuna almennings hafi verið gætt á fullnægjandi hátt. Það voru svo Jón Þórisson arkítekt og aðstoðarmaður Evu Joly og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur sem héldu tölu. Jón sagði meðal annars að það væri mikið í húfi ef ekkert væri að gert, það væri veislubragð í loftinu: „Nú skal grætt," sagði hann og vísaði til viðskiptahátta Magma Energy. Björk lauk fundinum á því að syngja nokkur lög.
Tengdar fréttir Björk syngur á blaðamannafundi Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona mun syngja á blaðamannafundi í dag klukkan fjögur þar sem þar sem kynnt verður undirskriftasöfnun vegna áskorunar um orkuauðlindir Íslendinga. Mun hún flytja nokkur laga sinna í nýrri útgáfu. 19. júlí 2010 11:33 1448 mótmæla Magma-kaupum Á heimasíðunni orkuaudlindir.is skorar Björk Guðmundsdóttir á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á HS Orku. Hún kynnir áskorun sína og syngur á blaðamannafundi síðar í dag. 19. júlí 2010 12:38 Eru fjárfestar velkomnir? Það er með nokkrum ólíkindum að stjórnvöld í ríki, sem þarf eins nauðsynlega á erlendri fjárfestingu að halda og Ísland, skuli leggja jafnmikið á sig og raun ber vitni til að hrekja erlenda fjárfesta frá landinu. 19. júlí 2010 09:59 Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Sjá meira
Björk syngur á blaðamannafundi Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona mun syngja á blaðamannafundi í dag klukkan fjögur þar sem þar sem kynnt verður undirskriftasöfnun vegna áskorunar um orkuauðlindir Íslendinga. Mun hún flytja nokkur laga sinna í nýrri útgáfu. 19. júlí 2010 11:33
1448 mótmæla Magma-kaupum Á heimasíðunni orkuaudlindir.is skorar Björk Guðmundsdóttir á stjórnvöld að koma í veg fyrir söluna á HS Orku. Hún kynnir áskorun sína og syngur á blaðamannafundi síðar í dag. 19. júlí 2010 12:38
Eru fjárfestar velkomnir? Það er með nokkrum ólíkindum að stjórnvöld í ríki, sem þarf eins nauðsynlega á erlendri fjárfestingu að halda og Ísland, skuli leggja jafnmikið á sig og raun ber vitni til að hrekja erlenda fjárfesta frá landinu. 19. júlí 2010 09:59