Innlent

Stöðvuðu kannabisrækun

Lögreglan á Selfossi lagði í gærkvöldi hald á 18 kannabisplöntur eftir húsleit í íbúðarhúsi í umdæmi lögreglunnar. Ólíklegt er að ræktun af þessari stærðargráðu verði skýrð með eigin neyslu og mun eigandi þeirra þurfa að skýra tilvist þeirra nánar fyrir lögreglu, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×