Innlent

Breytir engu fyrir Bjarna Ben

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
Formaður Sjálfstæðisflokks, Bjarni Benediktsson, segir að orð Adolfs Guðmundssonar, formanns LÍÚ, um að Íslendingar eigi að reyna að ná sem bestum samningi við Evrópusambandið, breyti engu fyrir flokkinn, sem hafi komist að annarri niðurstöðu.

Adolf, sem er andsnúinn ESB-aðild, sagði á Rás 2 í síðustu viku að hann teldi ekki að umsókn Íslands yrði dregin til baka. Því væri „algjört lykilatriði“ að ná ítrustu kröfum fram fyrir Íslands hönd. Fólk þurfi að geta tekið afstöðu og fylgi við aðild gæti aukist þannig að ákveðið yrði að ganga inn í ESB. Þá þyrfti að hafa besta mögulega samning í höndunum.

Landsfundur Sjálfstæðisflokks samþykkti í lok júní að krefjast þess að ESB-umsóknin verði dregin til baka. „Hann [Adolf] getur bara haft þá skoðun,“ segir Bjarni: „Við teljum að ekki sé stuðningur við málið og að það sé glapræði að standa í þessu þegar við þurfum að vera í öðrum björgunaraðgerðum.“

Adolf sagði einnig að hann teldi „mjög lítil líkindi á að menn nái ásættanlegri lausn fyrir íslenskan sjávarútveg. En það sem ég vonast til þess að komi fram er að það verði upplýst umræða og öfgalaus um það sem er að gerast.“

Evrópusamtökin íslensku fagna yfirlýsingu Adolfs, hún sýni að LÍÚ „vill virða lýðræðislegan rétt þjóðarinnar til að vega og meta kosti og galla aðildar“. - kóþ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×