Vill að ráðherra íhlutist um að HM verði í opinni dagskrá 10. ágúst 2010 16:37
Páll Magnússon útvarpsstjóri beinir því til Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra að hún íhlutist um að leiki íslenska handboltalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti verði að sýna í ólæstri dagskrá. Í dag var tilkynnt um að mótið verði sýnt á Stöð 2 Sport en ekki í Ríkissjónvarpinu eins og venjan hefur verið. Páll var í viðtali í síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag og þar sagði hann það á færi menntamálaráðherra að fara fram á að íþróttaviðburðir á borð við þennan verði að vera sýndir í opinni dagskrá. „Í evróputilskipun um sjónvarp, sem Ísland er aðili að, er gert ráð fyrir því að einstök lönd geti sett á lista íþróttaviðburði sem ekki má læsa í áskriftarsjónvarpi," sagði Páll. „Ef það er eitthvað í íslensku íþróttalífi sem ætti heima á þessum lista er það væntanlega íslenska handboltalandsliðið í úrslitakeppni á heimsmeistaramóti," bætti útvarpsstjóri við og sagði það á færi menntamálayfirvalda að setja saman lista af þessu tagi. „Og ef það er einhverntíma tilefni til að setja svona lista saman á Íslandi hlýtur það að vera núna." Útvarpsstjóri á villigötumPálmi Guðmundsson.Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 segir að þar sem blekið sé nýþornað á samningnum þurfi menn nokkra daga til þess að skipuleggja mótið og fyrirkomulag útsendinga. „Það liggur því ekkert fyrir nákvæmlega með hvaða hætti við munum halda á spilunum. Rétthafi mótsins hefur verið að selja þessa keppni bæði í opna og læsta dagskrá, til dæmis á Norðurlöndunum," segir Pálmi og bendir á að í Svíþjóð og víðar hafi keppnin verið sýnd í læstri dagskrá án íhlutunar þarlendra menntamálaráðherra.„Þá hafa engar svona reglur gilt um íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu, hvorki hvað varðar útileiki né heimaleiki, þannig að ég held nú að þarna séu menn á villigötum," segir Pálmi Guðmundsson.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira