Innlent

„Skrýtin vinnubrögð“

„Fólk verður að átta sig á því að allar svona ákvarðanir bitna náttúrulega á einhverjum,“ segir Kristinn.
„Fólk verður að átta sig á því að allar svona ákvarðanir bitna náttúrulega á einhverjum,“ segir Kristinn.

„Þetta er ekki fagleg nálgun en við ætlum ekki að dragast inn í þessa umræðu. Þeir sem eru að stýra borginni verða að taka þessar ákvarðanir og standa og falla með þeim en það er ekki hægt að segja annað en að þetta eru skrýtin vinnubrögð," segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, um dagbókarfærslu Jóns Gnarr borgarstjóra.

Hugsanlega verður engin flugeldasýning á Menningarnótt í ár en Jón íhugar nú að blása sýninguna af. Hann velti þessum möguleika upp á Fésbókinni í gærkvöldi. Með því myndu um þrjár milljónir sparast.

Kristinn telur óheppilegt að málið sé rætt fyrir allra augum á Fésbókinni. Hann segir ljóst að Landsbjörg komi til með að sitja uppi með flugeldanna sem pantaðir hafi verið frá Kína fyrir sex mánuðum. Gámur sé á leið til landsins sem þurfi að leysa út hvort sem af flugeldasýningunni verður eða ekki.

„Fólk verður að átta sig á því að allar svona ákvarðanir bitna náttúrulega á einhverjum. Í þessu tilfelli á sjálfboðaliðasamtökum sem eru nú aldeils búin að finna fyrir þessum samdrætti sem hefur komið niður á öllum björgunarsamtökum."

Ekki skriflegt samkomulag

Hjálparsveit skáta í Reykjavík hefur undanfarin ár séð um framkvæmdina við flugeldasýninguna fyrir Orkuveitu Reykjavíkjur en Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur séð um innflutninginn. Landsbjörg flytur inn alla flugelda fyrir björgunarsveitirnar en líkt og alþjóð veit er flugeldasala ein helsta fjáröflun björgunarsveitanna.

Kristinn segir að ekki hafi verið gert skriflegt samkomulag milli Hjálparsveita skáta og Orkuveitunnar um flugeldasýninguna í ár. „Menn hafa ekki unnið á þeim nótum. Heldur hefur verið gott samstarf, skilningur og traust milli aðila."






Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×