Íbúar kjósi um það sama og í mars 2007 10. ágúst 2010 04:00 Hafnfirðingar felldu í kosningum 2007 tillögu sem gert hefði kleift að ríflega tvöfalda áframleiðsluna í Straumsvík. Í sextán mánuði hefur legið fyrir nægur fjöldi undirskrifta til að endurtaka kosninguna en hún er þó ekki enn á dagskrá.
Álfyrirtækið Rio Tinto Alcan segist vilja auka við starfsemi sína hér á landi. Þetta kemur fram í svarbréfi félagsins til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. „Rio Tinto Alcan hefur sannarlega áhuga á að auka umsvif sín á Íslandi,“ segir í bréfi Alcan sem er að svara fyrirspurn frá bæjaryfirvöldum. Tilefni bréfaskiptanna er að frá því í mars í fyrra hefur legið fyrir tilskilinn fjöldi undirskrifta frá Hafnfirðingum til þess að endurtaka eigi íbúakosningu frá árinu 2007 um nýtt deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík. „Þar sem áformum fyrirtækisins um stækkun var hafnað í atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði er bæði eðlilegt og rétt að frumkvæði að því að setja þau áform aftur á dagskrá komi frá bæjarfélaginu, það er íbúum þess eða eftir atvikum fulltrúum þess,“ segir í svari Alcan. Málið hefur velkst milli bæjaryfirvalda og Alcan eftir að undirskriftirnar lágu fyrir. Bæjaryfirvöld hafa talið að Alcan hafi ekki gefið fullnægjandi svör um sína afstöðu en fyrirtækið segir ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka kosninguna. Hins vegar liggi engar ákvarðanir fyrir um það hvort eða hvernig yrði af stækkun eins og þeirri sem kosið var um í mars 2007. Ef til stækkunar kæmi myndi fyrirtækið líklega sækja um losunarheimildir til Evrópusambandsins. Eins sé það tilbúið að minnka svokallað þynningarsvæði umhverfis verksmiðjuna eins og bæjaryfirvöld spyrji um. „Fyrirtækið hefur að svo stöddu engar aðrar óskir uppi en þær að vilji bæjarfélagsins komi fram,“ er undirstrikað í bréfi álfyrirtækisins. Sagt er að mjög hafi dregist að senda svarbréfið við spurningunum sem bærinn setti fram í lok mars síðastliðinn. „Stjórnendur fyrirtækisins hafa undanfarna mánuði lagt höfuðáherslu á að ljúka endurnýjun á raforkusamningi álversins til að tryggja núverandi rekstur þess, en þeirri vinnu lauk á farsælan hátt í liðnum mánuði,“ er töfin útskýrð. Svarbréf Rio Tinto Alcan var lagt fram í bæjarráði á fimmtudag en engin ákvörðun tekin um íbúakosninguna. Hins vegar fól bæjarráðið oddvitum þeirra flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn, auk sviðstjóra og skrifstofustjóra skipulags- og byggingarsviðs, „að yfirfara framlögð svör“. gar@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira