Sömu mælikvarðar verði notaðir um alla í nefndinni 10. ágúst 2010 12:02 Sveinn Margeirsson mun ekki taka sæti í nefndinni.
Það er eðlilegt að hæfi allra í nefnd forsætisráðherra um Magma-málið séu metin út frá sömu mælikvörðum, segja heimildarmenn fréttastofu, sérfræðingar í stjórnsýslunni sem ekki vilja láta nafns síns getið. Sveinn Margeirsson tekur ekki sæti í nefndinni vegna vanhæfis. Forsætisráðuneytið hefur birt á vefsíðu sinni minnisblað, þar sem fjallað er um hæfi Sveins, til þess að setjast í nefnd forsætisráðherra um kaup Magma Energy Sweden AB á eignarhluta í HS orku, og fjalla jafnframt um starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. Fram kemur í minnisblaðinu að Unnur Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, sem fallist hefur á kaupin, hafi bent ráðuneytinu á að hún væri tengd Sveini. Enn fremur hefði hann lýst þeirri skoðun sinni í einkasamtali, að hafna ætti kaupunum. Forsætisráðuneytið segir verkefni nefndar sinnar að skila hlutlausri greinargerð um fjárfestingu Magma frá Svíþjóð. Ráðuneytið segist telja málefnalegt að miða við hæfisreglur stjórnsýslulaga um setu í nefndinni, enda þótt ekki sé skylda til þess; Vísað er til hagsmuna og væntinga viðskiptaaðila sem um sé að ræða, og einnig trausts almennings á stjórnsýslunni. Umtalsverðir hagsmunir séu undir. Í stuttu máli er Sveinn Margeirsson talinn vanhæfur til að sitja í nefndinni vegna vensla við Unni Kristjánsdóttir. Ummæli hans komi því ekki til skoðunar. Bent er á í forystugrein á vefritinu Smugunni, að Bjarnveig Eiríksdóttir, sérfræðingur í Evrópurétti við Háskóla Íslands, sem einnig hefur verið skipuð í nefndinni hafi sagt í viðtali við Ríkisútvarpið um miðjan júlí, að hún fái ekki séð hvaða regla sé brotin með því að leyfa Magma að kaupa hlut eða Magma í Svíþjóð að kaupa hlut í íslensku fyrirtæki. Heimildarmenn fréttastofu, benda á að meta eigi hæfi nefndarmanna út frá sömu mælikvörðum. Ekki sé hægt að velja einstakar greinar stjórnsýslulaga og meta hæfi einstakra nefndarmanna út frá þeim. Rétt kynni að vera, í tilviki Bjarnveigar, að kanna ummæli hennar nánar, en þó meðal annars með tilliti til tjáningarfrelsisákvæða stjórnarskrár, enn fremur með tilliti til þess hvernig hún hafi verið spurð í viðtalinu við Ríkisútvarpið, hvort svar hennar hefði verið sett fram með fyrirvörum og hvort svarið lýsi hlutlausri afstöðu til máls eður ei.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Erlent Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Erlent Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Innlent Fleiri fréttir „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Sjá meira