Þjónusta aukin í niðurskurði 10. ágúst 2010 06:00
Samgöngur Miðaverð venjulegrar ferðar með Herjólfi lækkaði úr um 3.000 krónum í 1.000 þegar farið var að sigla frá Landeyjahöfn. Það var gert samkvæmt ákvörðun samgönguráðuneytis, en ekki af því að kostnaðurinn hefði lækkað svo mjög, að sögn Guðmundar Nikulássonar hjá Eimskip. Þessi „rosalega mikla lækkun", hafi ekkert með Eimskip að gera. „Ríkisstyrkirnir eru ekki að minnka með þessum breytingum, frekar aðeins að vaxa," segir hann. Þótt siglingatími styttist verulega lækki heildarkostnaður af siglingum til Eyja ekki nema lítils háttar, enda er nú siglt nærri tvöfalt oftar. Þá þurfi að hafa starfsfólk í afgreiðslu allan daginn, fastur kostnaður af Herjólfi sé óbreyttur en viðhaldskostnaður meiri. Samgönguráðherra segir rétt að kostnaður ríkisins aukist. Það sé vegna lægri fargjalda og fleiri ferða. Á móti komi vonandi hagræðing í rekstri. Lægri fargjöld séu aðallega vegna styttri siglingar en einnig til að koma til móts við aukinn aksturskostnað Vestmannaeyinga til og frá Reykjavík. Siglingarnar séu hugsaðar sem hluti af þjóðveginum. „Kostnaðurinn mun aukast, það er hárrétt og það vissum við alveg," segir Kristján L. Möller samgönguráðherra. Hversu mikið hann aukist sé ekki eins víst. Ráðuneytið vinni með Eimskip í „opinni bók" sem þýði að rekstrargögn skipafélagsins vegna siglinganna verði opin ríkinu til upplýsingar fyrir næsta útboð, 2011. Markmiðið sé að ná fram hagkvæmari rekstri. Samgönguráðherra segir ráðuneyti sitt skera niður um tíu prósent í samgöngumálum í ár og jafnvel níu á næsta ári: „Við erum alls staðar að taka til." Hugsanlegt sé að samgöngur til Eyja lendi í niðurskurði líka. Þó sé þúsund króna fargjald ákveðið viðmið. Kristján minnir á að ríkisstyrkir vegna flugs til Eyja hafi verið aflagðir í ár og að Vestmanneyingar telji ferðir Herjólfs enn ekki nógu tíðar. Fargjöld eigi ekki að borga upp byggingu Landeyjahafnar sem hafi kostað tæpa fjóra milljarða. Kristján mun brátt skipa stýrihóp til að skoða hvernig ferja henti best á nýrri leið til Eyja. Hugsanlega megi nota sparneytnara skip. Hvorki Guðmundur né Kristján vilja nefna nákvæmar kostnaðartölur um siglingar til Eyja en nefna báðir að farþegafjöldi þangað hafi aukist eftir breytingarnar. Fólk fari í dagsferðir, sem áður var óþekkt. „Aukningin er talsvert meiri en fólk átti von á," segir Guðmundur. klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira