Innlent

Fulltrúar sjómannafélagsins gerðu aldrei athugasemdir við stefnu Gildis

Frá ársfundi Gildis-lífeyrissjóðs.
Frá ársfundi Gildis-lífeyrissjóðs.

Fulltrúar Sjómannafélags Íslands gerðu aldrei athugsemdir við fjárfestingastefnu Gildis-lífeyrissjóðs og allir fulltrúar félagsins á ársfundi sjóðsins sem haldinn var á dögunum greiddu atkvæði gegn tillögu um að stjórn og framkvæmdastjóri segðu af sér. Þetta kemur fram í svarbréfi framkvæmdastjóra Gildis-lífeyrissjóðs við bréfi sjómannafélagsins.

Þar lýsti félagið þungum áhyggjum af stöðu Gildis auk þess sem sem stjórnin vildi að skilduaðild að ákveðnum lífeyrissjóðum verði aflétt. Þá var þess einnig krafist í bréfinu að stjórn Gildis og framkvæmdastjóri segi af sér.

Í svarbréfinu bendir Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri sjóðsins á að þrátt fyrir að Gildi hafi þurft að lækka réttindi sjóðsfélaga um sjö prósent á dögunum hafi réttindin hækkað um 1,9 prósent umfram vísitöluhækkanir á síðustu fimm árum, að teknu tilliti til lækkunarinnar. Þá bendir Árni á að skylduaðild sjómannafélagsins að Gildi byggi á kjarasamningi og því þurfi félagið að snúa sér til viðsemjenda sinna ef það vill breyta því en ekki til lífeyrissjóðsins.

Framkvæmdastjórinn bendir einnig á þá staðreynd að á ársfundi Glitnis hafi tillaga Jóhanns Páls Símonarsonar um að stjórn sjóðsins og framkvæmdastjóri segðu af sér en sú tillaga var felld með öllum greiddum atkvæðum. „Þrír fulltrúar Sjómannafélags Íslands sátu fundinn, þar á meðal formaður félagsins, Helgi Kristinsson, og greiddi enginn þeirra atkvæði með tillögunni."

Að endingu segir Árni ástæðu til að benda á að sjómannafélagið átti ávallt fulltrúa í stjórn lífeyrissjóðsins og bera þeir fulltrúar sömu ábyrgð á fjárfestingum sjóðsins og aðrir stjórnarmenn. „Auk þess sat framkvæmdastjóri félagsins, Birgir Hólm Björgvinsson, í stjórn Gildis í tvö ár, frá apríl 2006 til apríl 2008. Bæði árin sem Birgir sat í stjórn samþykkti hann fjárfestingastefnu sjóðsins og undirritaði ársreikninga án athugasemda og aldrei gerði hann athugasemdir við fjárfestingar sjóðsins né fjárfestingastefnu allan þann tíma sem hann sat í stjórninni."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×