Innlent

Akraneskaupstaður skilar hagnaði

Rekstur Akranesbæjar skilar hagnaði fyrir fyrstu sjö mánuði ársins
Rekstur Akranesbæjar skilar hagnaði fyrir fyrstu sjö mánuði ársins Mynd: GVA
Akraneskaupstaður hefur birt rekstraruppgjör fyrir fyrstu sjö mánuði ársins. Þar kemur fram að bæjarfélagið skilar 212 milljónum króna í hagnað á tímabilinu í stað 33,5 milljóna króna taps eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Handbært fé frá rekstri voru 190,8 milljónir króna, fjármögnunarhreyfingar voru 140,5 milljónir. Handbært fé aukist um 66,3 milljónir frá áramótum og er í lok tímabilsins 337,3 milljónir.

Langtímaskuldir í lok tímabilsins, án lífeyrisskuldbindinga, hafa lækkað um 268 milljónir króna og eru nú 2.407,6 milljónir Langtímaskuldir í heild sinni ásamt lífeyrisskuldbindingum eru í lok tímabilsins eru 4.477,0 milljónir.

Akraneskaupstaður hefur ekki tekið nein langtímalán á árinu og eru þau ekki fyrirhuguð á árinu 2010 samkvæmt fjárhagsáætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×