Greiðslur skertar um allt að 16,7 prósent 21. apríl 2010 04:00 Þótt lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun hækki á móti lækkandi greiðslum lífeyrissjóðanna nær sú hækkun ekki að vega upp skerðinguna. Fréttablaðið/Anton
Stærstu lífeyrissjóðirnir á almennum markaði sjá fram á að þurfa að skerða greiðslur til lífeyrisþega vegna slæmrar stöðu sjóðanna. Engar skerðingar verða hjá starfsmönnum ríkisins. Greiðslur frá Almenna lífeyrissjóðnum munu skerðast mest af þeim lífeyrissjóðum sem tilkynnt hafa um fyrirhugaðar breytingar, eða þeim sem Fréttablaðið hafði samband við í gær. Stjórn sjóðsins mun leggja til við aðalfund að lífeyrisréttindi verði skert um 16,7 prósent frá og með 1. júní, segir Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri sjóðsins. „Menn fara misjafnlega hratt í að laga réttindin að breyttum aðstæðum,“ segir Gunnar. Hann segir stöðu sjóðsins síst verri en annarra lífeyrissjóða, en menn fari misjafnlega hratt í að laga réttindi að minni eignum. „Auðvitað er þetta áfall, þetta er erfið aðgerð sem leggst illa í alla,“ segir Gunnar. Hann segir þetta ekki sýna að sjóðurinn hafi fjárfest óábyrgt, þótt eftir á að hyggja hefði varasjóðurinn mátt vera stærri. Aðrir sjóðir munu einnig skerða greiðslur. Lífeyrisréttindi skerðast líklega um tíu prósent hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, og sjö prósent hjá Gildi. Stapi áformar að frysta lífeyri í sömu krónutölu hinn 1. maí þar til vísitala neysluverðs hefur hækkað um fimm prósent. Sumir þessara sjóða skertu einnig bætur í fyrra. Tvær ástæður eru helstar fyrir skerðingunni, segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða. Stærsta skýringin sé bankahrunið, en einnig þurfi að bregðast við hækkandi meðalaldri. Hrafn segist ekki telja að lækka þurfi greiðslur úr lífeyrissjóðunum aftur á næsta ári. Stærsti lífeyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, mun ekki skerða réttindi sinna félagsmanna, enda slíkt óheimilt samkvæmt lögum, samkvæmt upplýsingum frá sjóðnum. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Erlent „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Innlent Kosningavaktin: Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði um allt land Innlent Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Erlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent Fleiri fréttir Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Sjá meira