Gósentíð handboltarokkara 29. apríl 2010 10:00 Rokkararnir í Godsmack gefa út sína fimmtu hljóðversplötu, The Oracle, 4. maí næstkomandi.
Svokallaðir handboltarokkarar eiga gósentíð í vændum miðað við þær plötur sem líta nú dagsins ljós hver á fætur annarri. Það eru hljómsveitirnar Godsmack, Stone Temple Pilots, Good Charlotte, Bullet For My Valentine og Drowning Pool sem bjóða í veisluna. Godsmack gefur út sína fimmtu hljóðversplötu, The Oracle, 4. maí næstkomandi. Sveitin kemur frá Massachusetts í Bandaríkjunum og var stofnuð árið 1995 af forsprakkanum Sully Erna, sem hefur nefnt hinn sáluga Laney Staley úr Alice In Chains sem helsta áhrifavald sinn. Tvær plötur sveitarinnar, Faceless og IV, hafa komist í efsta sæti Billboard-sölulistans. Hafa þær fest hana í sessi sem eina vinsælustu þungarokkssveit síðasta áratugar í Bandaríkjunum, enda hafa plötur hennar selst í yfir nítján milljónum eintaka um heim allan. Á meðal vinsælustu laga Godsmack eru Straight Out Of Line, Awake og I Stand Alone sem hljómaði í ævintýramyndinni The Scorpion King.Scott Weiland er mættur aftur með Stone Temple Pilots eftir langt hlé.Stone Temple Pilots öðlaðist heimsfrægð þegar grunge-bylgjan reist hátt í byrjun tíunda áratugarins. Sveitin fékk Grammy-styttu fyrir slagarann Plush og hafa plötur sveitarinnar selst í tæpum fjörutíu milljónum eintaka. Geri aðrir betur. Stone Temple hætti störfum 2003 eftir slagsmál söngvarans Scotts Weiland og gítarleikarans Deans DeLeo og eftir það gekk Weiland til liðs við Velvet Revolver. Núna hefur Stone Temple Pilots verið endurreist, allir eru orðnir vinir aftur og fyrsta hljóðversplatan í níu ár kemur út 25. maí. Athygli vekur að Atlanta gefur plötuna út en fyrirtækið höfðaði fyrir tveimur árum mál gegn Weiland og trommaranum Eric Kretz fyrir meint samningsbrot.Joel Madden er forsprakki Good Charlotte sem gefur út Cardiology 11. maí.Good Charlotte spilar létt pönk-rokk í anda Blink 182 og Green Day. Fimmta plata sveitarinnar, Cardiology, er væntanleg 11. maí. Good Charlotte, sem er skírð eftir samnefndri barnabók, var stofnuð í Maryland í Bandaríkjunum 1995. Önnur plata sveitarinnar, The Young And The Hopeless, skaut henni upp á stjörnuhimininn og sömuleiðis söngvaranum Joel Madden. Einkalíf hans hefur verið áberandi í fjölmiðlum, sérstaklega eftir að hann byrjaði með raunveruleikastjörnunni Nicole Richie. Þau eiga tvö börn saman og ætla að ganga upp að altarinu á næstunni. Drowning Pool spilar eilítið harðara rokk, nokkuð í anda Godsmack. Fjórða plata sveitarinnar, samnefnd henni, kom út á þriðjudaginn. Drowning Pool var stofnuð í Dallas 1996 og er á mála hjá útgáfufyrirtækinu Eleven Seven Music ásamt sveitum á borð við Mötley Crüe og Blondie. Tíð söngvaraskipti hafa verið hjá Drowning Pool. Eftir að upphaflegi söngvarinn Dave Williams lést úr hjartasjúkdómi 2002 aðeins þrítugur hljóp Jason Jones í hans skarð. Eftir að hann hætti gekk Ryan McCombs til liðs við sveitina áður en Full Circle kom út 2007 og er hann enn að. Bullet For My Valentine kemur frá Wales og spilar þungarokk þar sem gamaldags gítartilþrif eru áberandi. Sveitin hóf störf með því að spila lög Metallica og Nirvana undir nafninu Jeff Killed John. Árið 2002 gerði hún fimm platna samning við Sony BMg og kom fyrsta platan, The Poison, út 2005. Sveitin, sem gaf út sína þriðju plötu, Fever á þriðjudag, hefur selt yfir tvær milljónir platna á ferli sínum. freyr@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Sjá meira