Fundar með Bjarnfreðarsyni um minnisvarða um Helga Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. júlí 2010 20:49 Helgi Hóseasson stóð jafnan á gatnamótum Langholtsvegar og Holtavegar. Mynd/
Vonast er til þess að minnismerkið um Helga Hóseasson, mótmælanda Íslands, verði komið upp á gatnamótum Langholtsvegar og Holtavegar áður en sumri lýkur. Alexander Freyr Einarsson hefur átt veg og vanda að því að fá styttuna setta upp. Hann segir að S. Helgason sé að hanna hellu úr íslensku blágrýti með fótspori Helga Hóseassonar og áletruninni „Hver skapaði sýkla". Lokateikning að hellunni er tilbúin. „Ég ætla að ræða þetta við aðstandendur Helga og sjá hvort þau samþykki þetta en að mínu mati er þetta bara svona nettur og flottur minnisvarði sem ég held að yrði bara við hæfi," segir Alexander í samtali við Vísi. Hann segir að stytta af Helga hafi ekki komið til greina. „Þegar ég ræddi við Hönnu Birnu (fyrrverandi borgarstjóra; innsk. blm) á sínum tíma þá sagði hún að stytta væri kannski ekki raunhæfur möguleiki. Auk þess var fjölskyldan hans ekkert hrifinn af því. Fannst það kannski of mikið hégómagirnd," segir Alexander. Þess vegna hafi minnissteinninn verið við hæfi. Alexander segir að sér hafi líka fundist vel við hæfi að hafa letrið af einu þekktasta skilti Helga á hellunni. Alexander býst við því að næstu skref verði að tala við nýja borgarstjórann um málið og um leið verði hellan framleidd. „Ég þarf kannski að fá fund með Georgi Bjarnfreðarsyni til að vita hvort þetta sé ekki í góðu ennþá. Í það minnsta talaði Hanna Birna um að ég þyrfti bara að senda ritaranum hennar meil þegar að hönnunin væri tilbúin," segir Alexander. Alexander segir að söfnunin sem hann hratt af stað hafi gengið illa. Rétt rúmlega 50 þúsund krónur hafi safnast. Það þurfi hins vegar ekki að koma að sök því að steinsmiðjan S. Helgason hyggist gefa steininn. „Peningurinn liggur í raun bara inni á reikningi og ég þarf að ákveða hvort ég eigi að nota hann í einhvern viðhaldskostnað eða hvort maður endurgreiði þeim sem voru svo góðir að leggja inn á hann," segir Alexander.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Sjá meira