Nýjan tónleikastað vantaði og Venue fyllir skarðið 21. maí 2010 11:30 Nú um hvítasunnuhelgina opnar Venue á ný með pomp og prakt með fjögurra daga tónleikaveislu sem nefnst "Maíhem". „
Það var orðin vöntun á tónleikastöðum eftir að Batteríið brann og Grand Rokk lokaði dyrum sínum,“ útskýrir Jón Pálmar Sigurðsson, eigandi skemmtistaðarins Venue á Tryggvagötu 22. Jón Pálmar og unnusta hans, Rebecca Moran, reka einnig hinn vinsæla bar Bakkus en báðir staðirnir mynduðu eitt sinn Gauk á Stöng. „Venue verður nú fyrst og fremst tónleikastaður með fjölbreytta og spennandi tónleika þrjú kvöld í viku. Að loknum tónleikum tekur svo dansstemning við um helgar en segja má að áherslurnar séu dálítið breyttar.“ Rebecca, sem er myndlistarkona, hefur skreytt staðinn fagurlega að innan. „Annars eru svo sem engar stórkostlegar útlitsbreytingar en við erum komin með frábært hljóðkerfi sem við fengum úr Austurbæ.“ Jón Pálmar býst við því að það gangi vel að reka Bakkus og Venue svona hlið við hlið. „Það er sama fólkið sem vinnur á báðum stöðunum og einstaka sinnum verður einhver sameiginlegur viðburður á stöðunum en annars verður Bakkus áfram með sama sniði sem bar þar sem plötusnúðar þeyta skífum en Venue verður tónleikastaður. Við erum búin að fara yfir hljóðeinangrunina á milli þannig að það ætti ekki að vera neitt sem truflar gesti.“ Nú um hvítasunnuhelgina opnar Venue á ný með pomp og prakt með fjögurra daga tónleikaveislu sem nefnst "Maíhem". Meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveitirnar Sudden Weather Change, Reykjavík!, Captain Fufano, Útidúr og Me the Slumbering Napoleon. Að loknum tónleikum hvers kvölds verður svo ókeypis inn á DJ settin sem duna fram á rauða nótt. - amb Hér er Facebook-síða Maíhem með nánari upplýsingum um dagskránna.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira