Hvalveiðimenn bjóða upp á hvalaskoðun 9. ágúst 2010 09:00 Gunnar Bergmann Jónsson segir einu breytingarnar á bátnum þær að millidekkið verður sýningarsalur með innyfli hvalanna svo sem hjarta og öðru í formalíni.
Ferðamennska Hrefnuveiðimenn ehf., sem veiða hvali og selja kjötið af þeim á innanlandsmarkaði, ætla framvegis að bjóða upp á hvalaskoðun meðfram veiðum sínum. Þeir stefna að því að hefja hvalaskoðunarferðir um miðjan mánuðinn. „Hvalaskoðun er kannski ekki alveg rétt orðið. Við ætlum að bjóða upp á hvalaskoðun með hvalveiðimönnum. Við erum að fara að sýna hvernig hvalveiðar fara fram án þess þó að veiða sjálf dýrin. Við viljum sýna allt ferlið, leyfa fólki að kynnast okkur hvalveiðimönnum, skjótum úr byssunni og bjóðum upp á hvalkjöt," segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf., og bætir því við að ekkert þessu líkt sé í boði neins staðar í heiminum. Hrefnuveiðimenn keyptu nýjan bát, Hrafnreyði, í vor og í kjölfarið vildu þeir finna fleiri nýtingarkosti á bátnum þar sem veiðitímabilið er takmarkað. Skipið Hrafnreyður verður framvegis nýtt bæði til hvalveiða og hvalaskoðunar. „Við getum nýtt bátinn án þess að breyta honum mikið og þar með komið þessu þannig fyrir að við getum á hverri stundu farið í hvalveiðar og svo sýnt inn á milli," segir Gunnar. „Einu breytingarnar á bátnum eru þær að við breyttum millidekkinu í sýningarsal þar sem við sýnum fólki innyfli hvalanna svo sem hjartað og annað í formalíni og erum svo með myndasafn af hvalveiðum bæði í gamla daga og í dag. Svo bættum við líka við klósettum." Hvalveiðar eru víðast hvar umdeildar. Samtök ferðaþjónustunnar hafa nokkrum sinnum ályktað gegn hvalveiðum á Íslandi og á aðalfundi sínum í vor ályktuðu þau að hvalveiðar í nánd við hvalaskoðun hefðu bein neikvæð áhrif á hvalaskoðunina. Aðspurður hvort það orki ekki tvímælis að bjóða upp á hvalaskoðun í hvalveiðiskipi segir Gunnar: „Þetta er einmitt umræðan, að hvalveiðar og hvalaskoðun geti ekki farið saman. Ég held að við eigum eftir að sjá hver viðbrögðin við þessu verða. Það getur svo sem vel verið að þetta komi í hausinn á okkur en ég hef ekki stórar áhyggjur af því. Ég held að þetta tvennt geti vel farið saman. Ferðaþjónustugeirinn á Íslandi hefur staðið í blóma síðan hvalveiðar hófust aftur." Hrefnuveiðimenn gera út frá Kópavogi og hafa til umráða rúmlega 100 tonna skip sem getur að sögn Gunnars tekið 30 til 40 farþega. Hann segist vera spenntur fyrir því að byrja skoðunarferðir. „Að félaginu standa menn sem hafa sumir verið að veiða allt síðan á sjöunda áratugnum en við höfum aldrei gert neitt í líkingu við þetta. Við sækjum eitt dýr á morgun og svo hættum við veiðum og hefjum ferðamennsku."- mþl
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira