Mörg skaðabótamál á hendur fjármögnunarfyrirtækjum í undirbúningi 12. júlí 2010 19:03
Fjölmörg skaðabótamál á hendur fjármögnunarfyrirtækjum eru nú undirbúningi af hálfu eigenda fyrirtækja sem voru sett í þrot vegna gengistryggðra lána. Í einu slíku máli hleypur bótakrafan á mörg hundruð milljónum króna. Fjölmörg fyrirtæki voru með gengistryggð lán í líkingu við þau sem nú hafa verið dæmd ólögmæt í hæstarétti. Fyrirtækin réðu misvel við afborganir af þessum lánum en mörg þeirra voru sett í þrot eða yfirtekin á grundvelli þessara lána. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að fjölmörg mál séu nú í undirbúningi þar sem fyrrum eigendur þessara fyrirtækja ætla að krefjast skaðabóta frá fjármögnunarfyrirtækjunum fyrir ólögmætar aðgerðir. Fyrirtækin voru mörg hver með heilbrigðan rekstur en réðu hins vegar ekki við stökkbreyttu lánin. Björn Þorri Viktorsson lögmaður sagðist í samtali við fréttastofu í dag vera með eitt slíkt mál í undirbúningi. Bótakrafan í því máli er á bilinu 500 til eitt þúsund milljónir króna. Krafan beinist ekki eingöngu að lánafyrirtækinu sjálfu heldur forstjóra þess og stjórnarmönnum. Þá er ekki útilokað að þeir ráðherrar og embættismenn sem létu þessi lán viðgangast án athugasemda séu einnig skaðabótaskyldir. Í 13. grein laga um ráðherraábyrgð segir: „hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir lögum, skal og þegar þess er krafist jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur".
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira