Heilbrigðisráðherra setur stjórn Sjúkratrygginga af 16. ágúst 2010 06:00 Heilbrigðisráðherra mun ekki hafa verið sáttur við tillögu stjórnar Sjúkratrygginga Íslands um niðurskurð á kostnaði við sérfræðilækningar.
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur sett af stjórn Sjúkratrygginga Íslands og skipað stofnuninni nýja stjórn sem alfarið er skipuð nýju fólki. Fráfarandi stjórnarformaður segir ráðherra tortrygginn í garð stofnunarinnar, en ráðherra segist vilja færa hana nær ráðuneytinu. „Ég held að meginástæðan sé almenn óánægja [heilbrigðisráðherra] með þessa stofnun, og tortryggni í garð stofnunarinnar, eins og fram kom í vor þegar hún ætlaði að veita forstjóranum áminningu,“ segir Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður stofnunarinnar. Spurður hvort þetta geti leitt til þess að forstjóranum verði vikið til hliðar segir Benedikt svo ekki vera. „En ég held að þetta sé ekki gert af neinum hlýhug í garð forstjórans.“ Stjórnin sem nú hefur verið sett af var skipuð snemma árs 2008 til að undirbúa stofnun Sjúkratrygginga Íslands, sem voru stofnaðar formlega haustið 2008. Stjórnarmönnum var tilkynnt það bréflega um mánaðamótin að til stæði að skipa nýja stjórn. Ný stjórn með nýju fólki tók formlega við í gær. Benedikt segir að ekki hafi verið ágreiningur milli stjórnarinnar og heilbrigðisráðherra. Það hafi þó verið ljóst að ráðherra hafi ekki verið sáttur við allar þeirra hugmyndir. Sjúkratryggingum Íslands var gert að spara verulega í kostnaði við þjónustu sérfræðilækna. Benedikt segir að stjórnin hafi lagt til að kostnaðarþátttaka sjúklinga, annarra en þeirra sem þurfi mikið að nota þjónustuna, yrði aukin. Það hafi ráðherra ekki sætt sig við. Álfheiður segir að stjórnin hafi verið skipuð til að undirbúa stofnun Sjúkratrygginga Íslands, áður en lög um stofnunina hafi verið sett. „Í þeim lögum eru ákvæði um skipan stjórnar, og það var talið eðlilegt að ganga frá því þannig að skipa stofnuninni stjórn í samræmi við lögin,“ segir Álfheiður. Dagný Brynjólfsdóttir, nýr stjórnarformaður stofnunarinnar, er deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Álfheiður segir það heppilegt, enda hafi hún með stjórnarskiptunum viljað tengja stofnunina betur við ráðuneytið. Spurð hvers vegna enginn af þeim sem sæti áttu í undirbúningsstjórninni hafi verið beðinn um að sitja áfram segir Álfheiður að þar hafi verið um „eðlilega endurnýjun“ að ræða. Enginn trúnaðarbrestur eða ágreiningur hafi verið milli hennar og stjórnarinnar. Upp kom deilumál síðasta vor þar sem Álfheiður ætlaði að áminna Steingrím Ara Arason, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, en hætti við eftir að málið komst í hámæli. Álfheiður þvertekur fyrir að stjórnarskiptin tengist því máli, enda sé því löngu lokið. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Fleiri fréttir „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Sjá meira