Norskir ferðamenn eyða mestu á Íslandi 10. ágúst 2010 06:30 Ferðamenn versla fyrir lægri upphæðir en í fyrra, sem var metár. Tímabilið fram að eldgosi var mjög gott en verslun hefur dottið niður í kjölfar þess. fréttablaðið/gva
Ferðamenn sem komið hafa til Íslands í ár eyða minna en þeir sem komu síðastliðin tvö ár. Þetta segir Helgi Hrannar Jónsson, framkvæmdastjóri Global Blue, sem annast Tax Free á Íslandi. Samkvæmt tölum Global Blue eru það Norðmenn sem versla mest ferðamanna hér á landi, en þeir hafa verslað fyrir rúmlega tuttugu prósent meira í ár en í fyrra. Danir eru í öðru sæti en þeir hafa minnkað verslun, og hafa verslað fyrir rúmlega tuttugu prósent lægri upphæðir nú en í fyrra. Athygli vekur að Kanadabúar hafa verslað tíu prósentum meira í ár en í fyrra og segir Helgi að aukin tíðni flugs til og frá Kanada geti verið ástæða þess. Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sett strik í reikninginn. „Sé fyrri hluti þessa árs tekinn saman þá er tímabilið fram að gosi ótrúlega gott, og á þeim tíma var töluverð aukning í sölu til erlendra ferðamanna að teknu tilliti til verðbólgu.“ Helgi segir þetta hafa gefið góð fyrirheit um sumarið en það hafi ekki gengið eftir þegar eldgosið varð. „Reyndar má segja sem svo að sú aukning sem hafði átt sér stað hefur jafnast út.“ Árið 2009 var metár í ferðamennsku á Íslandi og eyddu ferðamenn að meðaltali 90 prósentum meira fyrri hluta ársins en á sama tíma árið áður. Ferðamenn virðast nú vera að fara aftur í gamalkunnugt munstur, að skoða náttúruna meira og kaupa minna. Þá virðist ferðamönnum sem koma í styttri ferðir vera að fækka. „Ferðamenn eyða lægri upphæðum að meðaltali í hvert skipti. Styrking krónunnar hefur líka töluvert að segja enda hefur hún styrkst um meira en tíu prósent samanborið við sama tíma í fyrra,“ segir Helgi. Hann segist telja að þegar árið verði tekið saman muni fækkun ferðamanna og styrking krónunnar sýna lítilsháttar samdrátt á markaði. Það sé ágætis niðurstaða sé tillit tekið til þessara þátta. Helgi segir íslenska kaupmenn hafa staðið sig gríðarlega vel undanfarin ár og þeir stuðli að góðu framboði, háu þjónustustigi og sanngjörnu verðlagi miðað við nágrannalöndin. Vöxtur í íslenskri hönnun hafi einnig verið mikill. „Íslensk kaupmannastétt hefur allt frá hruni unnið þrekvirki í að bjóða gott úrval og gott verð.“ thorunn@frettabladid.is
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Minkum sleppt út í Mosfellsdal „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira