Bretar standa með Beckham 24. september 2010 08:00 Beckham-hjónin ætla ekki að láta frétt In Touch yfir sig ganga heldur ætla í mál við útgefandann á öllum vígstöðvum.nordicphotos/getty
Bandaríska tímaritið In Touch birti í gær forsíðufrétt um að David Beckham hefði átt næturgaman með tveimur vændiskonum, borgað þeim háar summur fyrir kynlífsleiki og hitt aðra þeirra aftur. Bretar segja málið lykta af ofsóknum og telja það samsæri gegn þjóðinni. Samkvæmt In Touch á David Beckham að hafa hitt vændiskonuna Irmu Nichi í ágúst 2007 á Le Parker Meridien-hótelinu í New York. Samkvæmt heimildum blaðsins á Beckham að hafa greitt henni 3.200 pund, eða tæpa hálfa milljón, fyrir þjónustu sína. Önnur vændiskona hafi síðan bæst í hópinn en henni er lýst sem lögulegri og brúnhærðri snót. Beckham á að hafa greitt Irmu aðra eins fjárhæð fyrir að gista um nóttina og svo hafi þau hist aftur í London á Claridge-hótelinu mánuði seinna. Breska blaðið The Sun greinir frá því að Irma þessi hafi verið einn af skjólstæðingum hórumömmunnar Kristin Davis sem gerði allt brjálað í New York þegar upp komst um svörtu bókina hennar en í henni voru geymd öll nöfn heimsfrægra viðskiptavina á borð við Eliot Spitzer, þáverandi ríkisstjóra New York-ríkis. Samkvæmt The Sun logar nú allt í Bretlandi en þeir hafa tekið upp hanskann fyrir Beckham. Sumar samsæriskenningar á spjallborðum í Bretlandi ganga svo langt að þetta sé vopn Þjóðverja gegn því að England fái að halda HM í knattspyrnu 2018. En Beckham er talsmaður þess verkefnis fyrir hönd Englands. Á það hefur nefnilega verið bent að útgáfufélag In Touch, Bauer, sé þýskt en Þjóðverjar hafa líka sóst eftir því að fá að halda umrætt mót. The Sun hefur eftir nánum vini Beckham-hjónanna að þau séu merkilega róleg yfir málinu, þau séu meira undrandi á því að blaðið skuli hafi birt fréttina án þess að hafa nokkrar sannanir. Blaðið greinir frá því að Bert Deixler, bandarískur lögfræðingur og sérfræðingur í meiðyrðamálum, hafi verið fenginn til að höfða mál á hendur In Touch. Lögfræðingaher undir stjórn Gerrard Tyrrell mun stjórna málinu á Bretlandi og svo hefur verið safnað saman öllum helstu lögfræðingum Þýskalands til að sækja mál gegn útgefandanum. Hvað sannleiksgildi fréttarinnar varðar bendir vinur Beckham-hjónanna á að leikmaðurinn hafi vissulega verið í New York á umræddum tíma, hann hefði gist á Waldorf-hótelinu. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira