Innlent

Allar þoturnar farnar af Reykjavíkurflugvelli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Allar þoturnar eru farnar af Reykjavíkurflugvelli. Mynd/ Vilhelm.
Allar þoturnar eru farnar af Reykjavíkurflugvelli. Mynd/ Vilhelm.
Allar þoturnar sem lentu á Reykjavíkurflugvelli eru farnar þaðan aftur. Eins og greint var frá í morgun lentu fimm farþegarþotur á vegum Icelandair og Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna blindþoku, sem óvænt gerði á Keflavíkurflugvelli skömmu áður en vélarnar komu til landsins. Vélunum var lagt í röð og hátt í sjö hundruð farþegar biðu um borð í þeim á meðan að stytti upp. Allar vélarnar tóku smávegis viðbótar eldsneyti en héldu svo í loftið á ný, áleiðis til Keflavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×