Innlent

Miðstjórn Framsóknarflokksins kemur saman

Frá flokksþingi framsóknarmanna í janúar 2009.,
Frá flokksþingi framsóknarmanna í janúar 2009.,
Vorfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður í Valsheimilinu að Hlíðarenda á morgun. Fundurinn verður settur um tíuleytið og síðan tekur við ræða formanns, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Fundurinn er opinn frá setningu og fram yfir ræðu formanns. Eftir það verður fundurinn lokaður öðrum en þeim sem eiga rétt til setu á honum. Reiknað er með að fundurinn standi til klukkan hálf fimm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×