Innlent

Síðasta strandveiðitímabil sumarsins er hafið

Mikill hamagangur var í öskjunni hjá tilkynningaskyldunni og í stjórnstöð landhelgisgæslunnar á slaginu klukkan tólf á miðnætti, en þá hófst síðasta strandveilðitímabil sumarsins og allstaðar var gott sjóveður.

Á sjöunda hundrað skip og bátar voru á sjó hér við land á sjötta tímanum í morgun og fjölgaði jafnt og þétt.

Óvenju mikið kapp er í strandveiðimönnum núna, þar sem ágústkvótinn er mun minni en kvótarnir fyrr í sumar og þar sem kerfið byggist á hugtakinu: fyrstur kemur, fyrstur fær, reyna allir að veiða sem mest áður en heildarkvótinn er uppurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×