Innlent

Senda baráttukveðjur

Félag íslenskra flugumferðarstjóra lýsir yfir stuðningi við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og sendir því baráttukveðjur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þeir hafa sent frá sér.

Þar segir að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn gegna afar mikilvægum hlutverkum í öryggis- og heilbrigðiskerfi landsmanna. „Þeir neyðast að óbreyttu til þess að grípa til verkfallsvopnsins á föstudaginn kemur, 23. júlí, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum."

Flugumferðarstjórar hvetja launanefnd sveitarfélaga til að ganga þegar í stað til samninga við slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn og axla þannig ábyrgð sína á þeirri stöðu sem kjaradeilan er komin í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×