Fylgdi eftir manni götunnar 23. janúar 2010 06:00 Gamlir vinir Frosti Jón Runólfsson fylgdi vini sínum, Lofti Gunnarssyni, eftir í heimildarmyndinni Meinvill í myrkrunum lá. Mynd/spessi
Frosti Jón Runólfsson, nemi við Kvikmyndaskóla Íslands, gerði stuttmynd um æskuvin sinn sem hefur að mestu búið á götunni undanfarin ár. Myndin verður væntanlega frumsýnd á Skjaldborg á þessu ári. Stuttmyndin Meinvill í myrkrunum lá fjallar um líf Lofts Gunnarssonar, ungs manns sem hefur að mestu búið á götunni undanfarin ár. Myndin er í leikstjórn Frosta Jóns Runólfssonar. „Myndin fjallar um íslenska iðjuleysingjann, draumóramanninn, heimspekinginn og fylliraftinn Loft. Þið hafið kannski séð þennan tveggja metra háa, húðflúraða mann ráfa um götur bæjarins með rauðvínsbokku í hönd? Ég og Loftur höfum þekkst frá því við vorum börn og þessi mynd er eiginlega jólagjöf mín til hans. Ég átti efni af honum sem nær aftur til ársins 2001, þá eignaðist ég mína fyrstu kvikmyndatökuvél og gerði mikið af því að taka upp allt sem varð á vegi mínum,“ útskýrir Frosti. Hann segir hugmyndina að myndinni hafa kviknað eftir að hafa horft á kvikmyndina Stroszek eftir Werner Herzog og datt þá í hug að blanda saman nýju efni með Lofti við annað eldra. Aðspurður segir hann tökur hafa gengið ágætlega, en tökuliðið samanstóð af Frosta sjálfum og unnustu hans, sem var bílstjóri, aukaleikari og hljóðkona. „Loftur drekkur svolítið þannig að hann var rallhálfur allar tökurnar. En ég vissi hvað ég var að fara út í og það hefði ekki verið „ekta“ að biðja Loft um að vera edrú á meðan tökum stóð því þá væri ég ekki að skjóta Loft. Hann hefði ábyggilega ekki tekið það í mál hvort eð er.“ Myndin verður að öllum líkindum frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fer á Patreksfirði í ár. Frosti er hálfnaður með nám sitt í Kvikmyndaskóla Íslands en hyggst taka sér hlé frá námi þessa önn og ferðast til Filippseyja. „Ég ætla að flytja upp í fjallaþorp í Sagada, byggja mér kofa og eyða vetrinum þar. Eftir námið mun ég halda áfram uppteknum hætti.“ - sm
Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Kanónur komu saman í Hveragerði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira