Lífið

Lil Wayne hlakkar til að fara í fangelsi

Lil Wayne var gripinn með byssu og tekur afleiðingunum.
Lil Wayne var gripinn með byssu og tekur afleiðingunum.

„Ég hlakka til að fara í fangelsi,“ sagði rapparinn Lil Wayne í nýlegu viðtali.

Lil Wayne var á dögunum dæmdur í árs fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð. Hann hefur afplánun í New York seinna í mánuðinum.

„Enginn sem ég get talað við getur sagt mér hvernig er að vera í fangelsi,“ sagði Wayne og bætti við að fangavistin hafi verið eitthvað sem átti að gerast. „Ég lít svo á að hlutirnir gerist ekki að ástæðulausu. Ég veit að þetta er upplifun sem ég þarf á að halda þar sem Guð er að láta þetta gerast.“

Lil Wayne gaf nýlega út plötuna Rebirth, sem markar hans fyrstu spor í rokkbransanum – en hann hefur hingað til verið þekktur sem rappari. Platan hefur fengið slæma dóma og gagnrýnendur tala um slæma tilraun. Hann þarf ekki að velta sér upp úr því þar sem hann mun sitja inni næstu mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.