Elli hættur í Steed Lord 3. júní 2010 10:00 Hljómsveitin Steed Lord, sem er nú orðin þriggja manna hljómsveit, er sátt við lífið í borg Englanna. Mynd/úr einkasafni
Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord hafa verið búsettir í Los Angeles frá því í ágúst í fyrra og að sögn söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur eru þau búin að koma sér vel fyrir í borginni, en þau hyggjast dvelja þar um óákveðinn tíma. „Það gengur svakalega vel hjá okkur. Við erum búin að búin að gera okkur fallegt heimili hérna í Los Angeles og erum að vinna við það sem við elskum að gera og almennt er maður bara mjög hamingjusamur," segir Svala. Hljómsveitin hefur unnið ötullega að tónlist sinni undanfarið ár og von er á nýrri stuttskífu frá þeim í sumar. Steed Lord gerði einnig nýverið samning við bókunarfyrirtækið AM ONLY sem sérhæfir sig í bókunum á raftónlistarmönnum og er eitt hið stærsta á sínu sviði í Bandaríkjunum. „Við ætlum að halda áfram að túra um Bandaríkin, Evrópu og Asíu á næstunni. Við túruðum meðal annars með tónlistarkonunni Peaches um vesturströnd Bandaríkjanna fyrir jól og tókum svo sjálf túr um Bandaríkin og Evrópu eftir það. Síðan erum við að fara hanna boli og heyrnartól fyrir sænska fatamerkið WESC fyrir 2011 línuna þeirra sem er rosa gaman. Við höfum verið að vinna með þeim síðustu þrjú árin og tekið þátt í flestum auglýsingaherferðum þeirra síðan þá og það er mjög gaman," segir Svala. Nokkrar breytingar hafa einnig orðið innan hljómsveitarinnar því meðlimir hennar eru nú aðeins þrír talsins ólíkt því sem áður var. „Steed Lord er núna þriggja manna hljómsveit. Elli er ekki lengur í bandinu, hann býr í London og vildi einbeita sér meira að grafískri hönnun og er líklega að fara í nám þar í borg," segir Svala að lokum. - sm Hér er hægt að hlusta á tvö ný lög frá Steed Lord, Vanguardian og Bed of Needles. Hér er tískubloggið hennar Svölu, Killa Kali.
Mest lesið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Fleiri fréttir Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Sjá meira